afstaða Flokks fólksins til inngöngu í Evrópusambandið.
Virðulegur forseti. Við höfum síðustu daga hér á þingi verið að ræða um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi Evrópusambandið og inngöngu Íslands inn í bandalagið. Það sem við höfum verið að kalla eftir og mér hefur þótt vanta í umræðuna, virðulegur forseti, er afstaða m.a. Flokks fólksins í þessu máli. Aðkoma flokksins að málinu hefur ekki verið mikil, það hafa ekki margir þingmenn eða ráðherrar flokksins komið hér og tjáð sig í þessu mikilvæga máli sem flokkurinn hefur barist gegn í mörg ár, eða frá stofnun hans, held ég, ef ég kann söguna rétt. Það er merkilegt að við séum að ræða hér í raun og veru mál af þessari stærðargráðu á Alþingi þar sem ekki er augljós þingmeirihluti fyrir því. Gott og vel.
Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, Ragnar Þór Ingólfsson, er: Nú hefur Flokkur fólksins verið algerlega andvígur inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Að mati hæstv. ráðherra, hvað er það sem veldur því að flokkurinn er á þeirri skoðun og hvað telur flokkurinn og hæstv. ráðherra að muni gerast við inngöngu sem er þess valdandi að flokkurinn er andvígur inngöngu? Hverjar eru ástæður þess að Flokkur fólksins er á þessari skoðun og hvað óttast flokkurinn að muni gerast, segi þjóðin já við inngöngu?