afstaða Flokks fólksins til inngöngu í Evrópusambandið.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið sem var afar rýrt. Ef ég hefði viljað fara inn á heimasíðuna þá hefði ég getað gert það. Við erum í liðnum óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra og þess vegna stend ég hér og spyr hæstv. ráðherra aftur og óska þess góðfúslega að hann bendi mér ekki á að fara á netið að leita mér upplýsinga. Ég er að spyrja hæstv. ráðherra hér og ætlast til þess að hæstv. ráðherra svari mér einfaldlega hvaða ástæður liggi þar á bak við að Flokkur fólksins sé andvígur inngöngu í Evrópusambandið. Ég er ekki að tala um þjóðaratkvæðagreiðslu, ég er að tala um hina atkvæðagreiðsluna, ég er að tala um aðildina.
Virðulegur forseti. Hvaða ástæður eru það sem liggja á bak við hjá Flokki fólksins sem eru þess valdandi að flokkurinn telur hagsmunum Íslands betur borgið utan sambandsins en innan?