157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

áhrif aðildar að ESB á íslenskan vinnumarkað.

[13:44]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Nú situr hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra í ríkisstjórn sem vill ganga í Evrópusambandið. Eins og hæstv. ráðherra veit þá er þetta gamla aðildarumsóknin að Evrópusambandinu sem er áfram haldið með og það var ekkert kíkja í pakkann-umsókn, það er bara hrein og bein aðildarumsókn. Stjórnarliðar tala fyrir því að með inngöngu og upptöku evru þá muni allt á Íslandi verða eins og blómstrið eina; lægri vextir, lægra matarverð, auðveldara aðgengi að húsnæðismarkaði og lægri verðbólga. En við vitum að með inngöngu í ESB þá þyrfti að gera stórkostlegar breytingar á íslenska vinnumarkaðslíkaninu líka og aðlaga það meira að því sem gerist á Norðurlöndunum og í Evrópu, svona eins og SALEK-fyrirkomulagið sem ég veit að hæstv. ráðherra þekkir mjög vel. Það þyrfti að auka valdheimildir ríkissáttasemjara, það þyrfti að skilgreina kjarasamninga betur, m.a. út frá fjölda þeirra sem eru á bak við samningana o.s.frv. Verði þetta ekki gert, og Ísland gengur í Evrópusambandið, þá munum við taka höggið, m.a. í hærra atvinnuleysi eins og þekkist víða í Evrópusambandinu þar sem atvinnuleysi mælist allt að 25% hjá ungu fólki.

Þá langar mig að spyrja hæstv. ráðherra: Finnst hæstv. ráðherra jafn mikilvægt að gera þessar breytingar á vinnumarkaðslíkaninu til að koma okkur í Evrópusambandið og kollegum hans í ríkisstjórninni, í Viðreisn og Samfylkingunni?