afstaða innviðaráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir sín ágætu svör og sömuleiðis fyrir hversu hreinskilinn hann er hér í svörum við okkur hv. þingmenn þegar við erum að spyrja um ákveðin viðkvæm málefni, eins og kom fram í fyrirspurn hv. þm. Ólafs Adolfssonar hér rétt áðan. Ég ætla að vera á svipuðum slóðum og hv. þm. Ólafur Adolfsson varðandi það sem snýr að algerlega skýrum vilja Flokks fólksins þegar kemur að því hvort við viljum aðild að Evrópusambandinu eða ekki. Sá sem hér stendur hefur svo sem verið alveg skýr sömuleiðis og er skoðanabróðir Flokks fólksins hvað það varðar að aðild að Evrópusambandinu er ekki það sem er á dagskrá hjá mér. Sömuleiðis er ég hlynntur þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er réttur okkar að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er líka réttur sérhvers manns að segja nei, ekki bara já, það er stórt og mikið atriði. Þar sem hæstv. innviðaráðherra hefur verið mjög skýr í sínum svörum, og það hefur svo sem líka komið fram hjá öðrum hæstv. ráðherrum hvað menn vilja og þeir koma sinni skoðun á framfæri þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi, ef af verður, þá vil ég spyrja: Hvað ætlar hæstv. innviðaráðherra að gera? Skoðun hæstv. ráðherra á hinum ýmsu gjörðum Evrópusambandsins hefur alveg legið fyrir í gegnum tíðina. Ég get vitnað í greinar í minni seinni fyrirspurn til ráðherra. En það er ekki nóg að segja að menn segi nei við aðild að Evrópusambandinu (Forseti hringir.) heldur spyr ég: Hvað ætlar hæstv. innviðaráðherra að gera þegar kemur að þjóðaratkvæðagreiðslunni sem við ætlum jú að taka þátt í? Ætlar hæstv. innviðaráðherra að segja já eða nei?