afstaða innviðaráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Ég held að ég dragi allt til baka sem ég sagði áðan í minni fyrri fyrirspurn til hæstv. innviðaráðherra varðandi hreinskilin svör sem snúa að þessu. Ég skil svo sem ekki hvert menn eru að koma eða fara því ef menn eru algerlega yfirlýstir hvað það varðar að segja nei við aðild að Evrópusambandinu, til hvers þá að fara í viðræður? Það er akkúrat málið og það sem þetta snýst um. Það er lýðræðislegur réttur þjóðarinnar að taka afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu í haust. Það er lýðræðislegur réttur hvers og eins hvað hann segir. Það er mjög mikilvægt. En þegar menn eru yfirlýstir andstæðingar þess að ganga í Evrópusambandið, til hvers eru menn þá að segja já við þjóðaratkvæðagreiðslu? Ég tek fram að hæstv. ráðherra sagði það ekki áðan heldur sagði að það væri sitt einkamál. (Forseti hringir.) Ég virði það við hann en aftur á móti liggur það alveg fyrir þegar menn eru á móti aðild að þá er þetta nú að verða ansi snúið.