157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

afstaða innviðaráðherra í þjóðaratkvæðagreiðslu.

[14:05]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf):

Virðulegur forseti. Ég vona að ég hafi verið mjög skýr með það að ég er ekki hlynntur aðild Íslands að ESB. Það er spurning ef þú hefur ekki áhuga á að ganga í eitthvert félag þá ferðu væntanlega ekki að sækja um að ganga í félagið. Svo einfalt er það. Atkvæðagreiðslan í ágúst er leynileg og ég held mig við það. Ég held að það liggi ljóst fyrir hvernig ég mun greiða atkvæði. Þá má líka lesa á milli línanna sem ég vona að hv. þingmaður geri. Hins vegar er það grundvallaratriði að þjóðin fái að segja álit sitt á þessu máli. Þetta hefur vofað yfir okkur í svolítinn tíma núna. Það var send umsókn á sínum tíma í ríkisstjórninni sem var 2009–2013 og núna mun þjóðin svara þeirri spurningu hvort það eigi að halda áfram með þessa umsókn eða ekki. Við erum öll hér inni ráðin af íslensku þjóðinni. Við megum aldrei gleyma því. Það eru okkar vinnuveitendur og ég tel að við eigum að gera meira af því að halda þjóðaratkvæðagreiðslur um mikilvæg mál og það á ekki að hafa áhrif á stjórnarsamstarfið eða stjórnarmeirihlutann á þingi. Það er ekki verið að kjósa um ríkisstjórn Íslands í þessum kosningum. Það er grundvallaratriði. Þjóðin er spurð þessarar einföldu spurningar: Á að halda áfram með þessa aðildarumsókn eða ekki? (Forseti hringir.) Afstaða Flokks fólksins er alveg skýr hvað það varðar og ég hvet hv. þingmann til að lesa grein okkar ágæta formanns í Flokki fólksins sem birtist í Morgunblaðinu um helgina sem heitir „Í dóm þjóðarinnar“. Við erum að leggja málið í dóm þjóðarinnar.