umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að taka undir með kollegum mínum og hv. þingmönnum sem hafa farið yfir það að við höfum auðvitað verið verulega ósátt við það hvernig haldið hefur verið á þessu máli, ekki síst inni í utanríkismálanefnd þar sem hraði og pressa í vinnu nefndarinnar hefur auðvitað smitast hingað inn í þingsal. Ég heyri að það er boðað að hæstv. ráðherra muni loksins mæta til umræðunnar hér á eftir. Það er auðvitað vel. En það er ótrúlegt að hún skuli ekki hafa fylgt þessu máli eftir hér í þingsal undanfarna daga þegar við erum að ræða þetta risastóra og mikilvæga mál hennar í þingsal. Annars sá ég hér á göngunum áðan að hv. þingmaður og 1. varaformaður utanríkismálanefndar er mættur til landsins. Hann hefur skýrt frá því á Facebook-síðu sinni að hann hafi verið fjarstaddur umræðuna af því að hann hafi verið að sinna mikilvægum erindagjörðum erlendis fyrir þingið. Ég hlakka til að heyra hans ræðu og innlegg til umræðunnar hér á eftir.