157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:13]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Ég get ekki annað en tekið undir þau sjónarmið sem sett hafa verið fram hér á undan varðandi það að þessi gögn sem eru í þessu leyniherbergi verði birt og að forseti beiti sér fyrir því að svo verði hið fyrsta, því að eftir því sem málinu hefur undið fram hér í umræðunni hefur það verið að breytast. Það hafa komið fram sjónarmið er varða það að þetta sé ekki tveggja þrepa ferli heldur þriggja þrepa ferli, með einhverju huglægu mati forsætisráðherra, ráðherra hvers fyrir sig eða ríkisstjórnarinnar allrar. Allt mjög undarlegt. En af því að ríkisstjórnin leggur svona ofuráherslu á að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram áður en þing verður kallað saman aftur hér í haust þá eiginlega finnst mér nú hálfótækt að málið verði klárað í þingsal án þess að þetta leyniherbergi verði opnað og skjölin sem þar eru verði bæði okkur almennum þingmönnum og landslýð öllum aðgengileg í framhaldinu. (Forseti hringir.) Þá er hægt að klára málið og taka afstöðu til þess eftir bestu vitund hvers og eins.