umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa komið hér upp og gagnrýnt þetta ferli. Það er t.d. mörgum spurningum ósvarað. Hér hafa hæstv. forsætisráðherra og hæstv. orkumálaráðherra komið og talað fyrir því að mögulega verði ekki samningur lagður fyrir þjóðina. Bíddu, er þetta tveggja þrepa ferli eða er þetta þriggja þrepa ferli? Þarf þá ekki að breyta þingsályktunartillögunni svo almenningur viti í rauninni hvort hann er að fara að kjósa um það hvort hæstv. forsætisráðherra hugnist að leggja samninginn fyrir eða ekki? Um hvað er þjóðin að fara að greiða atkvæði, virðulegur forseti? Þetta þarf að vera skýrt. Þetta þarf að liggja skýrt fyrir áður en við látum þjóðina ganga til atkvæða 29. ágúst. Það þarf að vera skýrt í þingsályktunartillögunni hvort það geti verið komið undir hæstv. forsætisráðherra, hennar persónulega mati, hvort hér verði samningur lagður fyrir eða ekki. (Forseti hringir.) Það kemur ekki fram í þingsályktunartillögunni en það eru hæstv. ráðherrar sem eru farnir að halda því fram, virðulegur forseti.