157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:24]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Frú forseti. Mig langar að taka undir orð stjórnarandstöðuþingmanna sem hafa komið upp í pontu í dag. Ég kannast ekkert við að hér sé einhver sátt um að ljúka umræðum í dag. Ég hef ekki heyrt á það minnst. Síðan varðandi leynigögnin þá er náttúrlega óásættanlegt að ríkisstjórn sem segist treysta þingi og þjóð sé með gögn lokuð inni í herbergi sem einstaklingar í utanríkismálanefnd mega fara inn í og skoða gegn því að þeir segi ekki frá. Ég vil bara leyfa mér að efast um að það sé hægt að afgreiða þetta mál héðan úr þinginu fyrr en þessi gögn liggja fyrir. Þing og þjóð á rétt á því að fá að sjá þetta. Síðan er eitt enn. Fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, hefur óskað eftir því að fá afhent gögn frá sinni eigin embættistíð sem utanríkisráðherra þegar síðustu aðlögunarviðræðum var hætt. Utanríkisráðuneytið hefur ítrekað neitað honum um aðgang að þessum gögnum. (Forseti hringir.)Hvers vegna ætli það sé? Það er von að maður spyrji.