157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

umræður um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:30]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég held að allir stjórnarandstöðuflokkarnir sem segjast vera á móti Evrópuaðild hafi samt sagt að þeir setji sig ekki upp á móti þjóðaratkvæðagreiðslu, enda hafa þeir náttúrlega séð að það er ekki vænlegt til vinsælda en þeir hafa hins vegar tekið þann kost að gera allt tortryggilegt. Já, ég verð að viðurkenna að ég hló áðan þegar hv. þm. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir sagði að stjórnarandstaðan vildi ekki standa í vegi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu og sagðist vera að greiða fyrir umræðunni. Einmitt, eigum við að ræða það eitthvað? Það er ekkert tortryggilegt við það að öll gögn séu ekki sett fram fyrir almenning. Þetta er áratugagömul regla og aðferð og ekkert við það að athuga og ekki eitthvað sem þessi ríkisstjórn getur breytt. Þið vitið alveg að það er ekkert tortryggilegt við það. Hvað varðar það sem verið er að gera núna, að láta eins og það sé eitthvað mjög tortryggilegt líka að það eigi ekki að leggja lélegan samning fyrir þjóðina, þá er það bara nákvæmlega sama og er t.d. gert í kjaraviðræðum. Ef forystumenn stéttarfélaga hafa ekki trú á samningi þá bera þeir hann ekki undir atkvæði. (Forseti hringir.) Þetta er það sama. Svo er greinilegt að það er mjög þægilegt fyrir minni hlutann í utanríkismálanefnd að kynna sér ekki gögn og koma svo og segja að þetta sé rosalega tortryggilegt.

Vinnið vinnuna ykkar. Kynnið ykkur gögnin.