157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[14:58]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Herra forseti. Hv. þingmenn stjórnarmeirihlutans virðast nú leitast við að breyta umræðu um fundarstjórn forseta í óundirbúnar fyrirspurnir til þingmanna. En fyrst hæstv. forseti leyfir það þá er mér ljúft og skylt að svara fyrirspurninni hvers vegna ég, og eftir atvikum aðrir fulltrúar minni hlutans í utanríkismálanefnd, þáðum ekki að fara í leyniklefann og skoða gögnin. Ástæðan er sú að það var eingöngu heimilt ef menn undirrituðu það að þeir myndu halda fullan trúnað um allt innihald efnisins og ekki vitna í það. Það er auðvitað ómöguleg staða að láta setja sig í sem stjórnmálamaður. Við getum ímyndað okkur ef sama leið hefði verið farin varðandi það sem var ekki einu sinni lagt fyrir nefndina en birtist í fjölmiðlum: samningsafstaða Evrópusambandsins gagnvart Íslandi í þeim viðræðum sem nú er reynt að endurvekja, þá hefðum við ekki mátt vitna í það. Þetta er algerlega fráleit nálgun frá hv. þingmönnum meiri hlutans.