upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.
Herra forseti. Ég tel ástæðu til að vekja athygli hæstv. forseta á því hversu miklu máli þessi óvissa skiptir um það hvort hugsanlegur samningur um aðild að Evrópusambandinu verði borinn undir þjóðina. Það skiptir máli af þeim ástæðum sem hér hafa komið fram áður en þetta sýnir líka viðhorf hæstv. ráðherra til þessa ferlis, að þeir ímyndi sér að út úr ferlinu, þessum svokölluðu samningaviðræðum, geti komið samningur, þá væntanlega undirritaður af utanríkisráðherra, sem utanríkisráðherra er alls ekki sáttur við og forsætisráðherra ætlar ekki að bera undir þjóðina. Þetta er annað. Þetta sýnir kannski að menn gera sér í rauninni grein fyrir eðli aðildarviðræðna að Evrópusambandinu. Hitt er að það geti komið ný ríkisstjórn sem telur sig í engu skuldbundna af tali hæstv. forsætisráðherra eða hæstv. utanríkisráðherra í þessari ríkisstjórn og metur það sem svo að samningur um aðild að Evrópusambandinu þurfi bara ekkert að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það sé búið að afgreiða málið, fín niðurstaða og þar með er Ísland komið í Evrópusambandið. Það þarf að passa þetta, herra forseti.