157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

upplýsingar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að ESB.

[15:03]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M):

Herra forseti. Það var eiginlega ótrúlegt að hlusta á hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur hérna rétt áðan halda því fram að minni hlutinn væri að gera þetta ferli tortryggilegt. Ég veit ekki betur en að meiri hlutinn sé einmitt að gera ferlið tortryggilegt með því að vera með gögn í leyniherbergi, gögn sem eingöngu örfáir þingmenn hafa aðgang að og mega ekki segja frá og mega ekki tala um. Ég segi bara: Þvílíkt væl og þvílíkur farsi. Það er meiri hlutinn sem gerir þetta ferli tortryggilegt.

Ég vil benda á eitt til viðbótar: Samningsmarkmiðin hafa hvergi verið birt. Það hafa engin samningsmarkmið verið borin á borð af þessum meiri hluta, engar rauðar línur. Og eitt enn: Það kemur skýrt fram í nefndaráliti meiri hlutans að verði af aðild þá verði tollvernd afnumin frá degi eitt á innflutningi á landbúnaðarafurðum frá ríkjum Evrópusambandsins. Það er gott að halda því til haga. Það eitt segir mér að það er aldrei hægt að semja um aðild að þessu batteríi, ekki séns.