þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Hér ræðum við þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu vegna aðlögunarviðræðna að Evrópusambandinu sem hún vill fara í. Í þessari annarri ræðu minni langar mig að ræða aðeins hvernig mér finnst hafa verið farið á bak við þing og þjóð í öllu þessu ferli og fara yfir nokkur atriði til umhugsunar um samskipti, aðallega utanríkisráðherra, við þing og þjóð, eða öllu heldur ekki-samskipti hæstv. utanríkisráðherra við þing og þjóð. Utanríkismálanefnd fékk fyrir nokkru yfirlit um samskipti utanríkisráðherra við ráðamenn í Evrópusambandinu og aðildarríki þess vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðlögunarviðræðnanna.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur var vart tekin til starfa þegar utanríkisráðherra hóf að ræða nýtt aðildarferli Íslands að Evrópusambandinu við norræna ráðamenn og framkvæmdastjórn ESB. Þetta var gert áður en Alþingi kom saman og löngu áður en þjóðaratkvæðagreiðslan var kynnt til sögunnar þannig að hér var byrjað strax á því að fara á bak við þing og þjóð. Samkvæmt þessum gögnum hófust þessi samskipti þegar 6. janúar 2025 og aðeins níu dögum síðar, 15. janúar, átti ráðherra fundi í Brussel með æðstu ráðamönnum Evrópusambandsins þar sem fyrirætlanir um þjóðaratkvæðagreiðslu voru kynntar. Á þessum tíma hafði ekki nokkur skapaður hlutur verið kynntur hér á Íslandi fyrir þingi eða þjóð. Í framhaldinu voru haldnir tugir funda þar sem rætt var um tímalínur, stöðu samningskafla frá 2013 og mögulegt framhald viðræðna. Af þessu yfirliti, sem er hægt að finna sem betur fer í gögnum málsins, sést að fjallað var um tímasetningar, sviðsmyndir og stuðning einstakra ríkja áður en málið kom til formlegrar meðferðar á Íslandi. Þetta finnst mér, herra forseti, stórlega ámælisvert. Ég get ekki kallað þetta annað en að fara á bak við þing og þjóð. Hvað er hægt að kalla þetta öðru nafni en að fara á bak við þing og þjóð?
Málið kom síðan fyrst á Alþingi Íslendinga í byrjun mars 2026. Auðvitað vekur þessi tímaröð upp spurningar. Það er bara eðlilegt að það að fara á bak við þing og þjóð, eins og ég vil kalla það, veki upp spurningar. Það er líka eðlilegt að spurt sé: Á þetta að vera ný venja við stjórnarframkvæmd mikilvægra mála? Er þetta ný venja? Ég vona ekki. Það er ekki til eftirbreytni að undirbúningur eigi sér stað í samtali við erlenda aðila áður en Alþingi og íslenska þjóðin fái málið til umfjöllunar. Það er bara vægast sagt mjög óeðlilega staðið að þessu máli. Fyrst er það rætt við vini hæstv. utanríkisráðherra í Brussel og síðan er það kynnt fyrir þingi og þjóð. Mér finnst þetta algjörlega óviðunandi og ég verð bara að lýsa þungum vonbrigðum með hvernig þetta mál kemur allt saman til sögunnar. Svo eru stjórnarandstöðuþingmenn, þegar þeir spyrja spurninga, sakaðir um alls kyns óheilindi, sem er náttúrlega fáránlegt að bera hér á borð. En maður veltir líka fyrir sér hvort það sé einhver ný skýring sem felist í þessu, í hverju trúnaður utanríkisráðherra, t.d. við utanríkismálanefnd, er falinn. Er trúnaður þess utanríkisráðherra sem nú situr enginn við utanríkismálanefnd eða þingið eða þjóðina?
Þá verð ég líka að vekja athygli á því að á sama tíma og þessi víðtæku samskipti áttu sér stað lá fyrir að Evrópusambandið var að undirbúa refsitolla. Evrópusambandið var að undirbúa refsitolla á járnblendi, á EES-ríkin Ísland og Noreg, á nákvæmlega sama tíma og þetta snertir íslenska hagsmuni eðlilega beint. Mig langar að vitna til orða fyrrverandi bæjarstjóra á Akranesi, Haraldar Benediktssonar, með leyfi forseta: „Norsk stjórnvöld hófu þegar undirbúning að hagsmunagæslu.“ Aftur er haft eftir fyrrverandi bæjarstjóranum Haraldi Benediktssyni, með leyfi forseta: „Þegar ég fékk upplýsingar um málið um sumarið komst ég að því að íslensk hagsmunagæsla var veik. Ég aflaði mér upplýsinga, m.a. frá Noregi.“
Virðulegur forseti. Þetta er náttúrlega fáránlegt. Hvar liggur fyrsta skylda stjórnvalda í slíkum aðstæðum? Fyrsta skyldan hlýtur að vera sú að verja íslenska hagsmuni. Þess vegna er von að spurt sé hvort áhyggjur séu af hagsmunagæslu fyrir Ísland. Samkvæmt stjórnarskrá bera ráðherrar ábyrgð á allri stjórnarframkvæmd, ekki bara formlegri ákvarðanatöku heldur einnig undirbúningi mála og framsetningu þeirra gagnvart þinginu og almenningi. Þegar um er að ræða mál af þessari stærðargráðu verður að gera ráð fyrir að meðferð þess fari fram á formlegum vettvangi ríkisstjórnar, í nefndum Alþingis og fundarsölum þess, þar sem ábyrgð er skráð og rekjanleg. Hvers vegna liggja þá fyrir ítarleg gögn um samskipti og undirbúning málsins á alþjóðavettvangi áður en það kemur til efnislegrar meðferðar á Alþingi? Það er líka eðlilegt, nú þegar þessi gögn hafa verið særð fram, að þau veki allt venjulegt fólk til umhugsunar varðandi trúnað utanríkisráðherra gagnvart þingi og þjóð, ekki síst utanríkismálanefnd sem ráðherranum ber að upplýsa. Ég verð að segja þessu tengt að það er búið að ræða mikið hérna í dag um leynigögnin í leyniherberginu sem engir mega sjá nema nefndarmenn í utanríkismálanefnd gegn því að vitna ekki til þeirra og tjá sig ekki um þau. Hvaða gagn er þá í því?
Með vísan til fyrri aðlögunarviðræðna, og ég hef vakið á þessu athygli áður, hefur fyrrverandi utanríkisráðherra, Gunnar Bragi Sveinsson, ítrekað óskað eftir gögnum frá utanríkisráðuneytinu varðandi sínar eigin embættisfærslur, varðandi samskipti hans og þáverandi embættismanna við embættismenn í Brussel. En nei, utanríkisráðuneytið hefur ítrekað hafnað því að veita utanríkisráðherranum fyrrverandi afrit af þessum gögnum. Hann hlýtur að bera ráðherraábyrgð en hann fær ekki afrit af gögnum. Þetta er allt saman með miklum ólíkindum.
Þar sem tíminn er að verða frekar skammur langar mig að ræða sérstaklega það sem kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans varðandi landbúnaðinn. Það veldur mér alveg ofboðslegum vonbrigðum vegna þess að það sem kemur fram hvað varðar landbúnaðinn í nefndaráliti meiri hlutans segir mér þetta: Það er betra heima setið en af stað farið. Það kemur nefnilega fram í nefndaráliti meiri hlutans að tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum myndi falla niður með aðild að tollabandalagi ESB. Það er eins og meiri hlutinn í utanríkismálanefnd átti sig ekki á því hversu mikilvæg tollvernd er fyrir íslenskan landbúnað, fyrir innlenda matvælaframleiðslu og fæðuframleiðslu og byggð í þessu landi. Mér finnst þetta vera alger óraunveruleikatenging meiri hlutans. Fyrir mér er þetta ein ástæða af mörgum fyrir því að hér er miklu betur heima setið en af stað farið. Við eigum ekki að fara í þessa vegferð. Við eigum miklu betra skilið.