157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[15:59]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur fyrir andsvarið. Leyndarhyggja, segir hv. þingmaður. Ég get tekið undir að það er auðvitað bagalegt ef það er svo að til staðar eru upplýsingar sem varða þetta mál og þar innan um eru upplýsingar sem verða að fara leynt, þ.e. ég skil það þannig, og þá meina ég af svörum stjórnarliða hér, að það varði kannski ekki akkúrat þau atriði sem snúa að þessu máli sérstaklega. En þá spyr maður sig: Er ekki hægt að hylja þau spor og láta þá liggja hér fyrir bara þær upplýsingar sem varða þetta mál og teljast varla til leyndarmála nema mögulega ef þetta eru einhvers konar varnartengd atriði? Nei, ég tel að það sé ekki góður bragur á því ef niðurstaðan er sú að hér upplifi þingmenn að þeir geti ekki treyst því að um sé að ræða gögn sem þeir vilji bera vitneskju um en geti ekki sagt frá, þá skil ég vel þá afstöðu þingmanna að vilja ekki búa yfir þeim upplýsingum. Ég held að það sé alveg rétt hjá hv. þingmanni að ef þetta væru slík atriði þá væri örðugt fyrir þingmenn að afgreiða þessa tillögu. En þetta snýst auðvitað alltaf um það hvað er í þessum gögnum. Ég er talsmaður þess að við reynum frekar að draga gögn fram í dagsljósið heldur en að fela þau og að það sé þá bara verkefni meiri hlutans á hverjum tíma eða utanríkisráðuneytisins að sverta þær upplýsingar sem varða ekki beinlínis málið og eru bundnar trúnaði.