þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir svörin og mér heyrist við vera frekar sammála. Mig langar aðeins að ræða við hann í seinna andsvari um landbúnaðinn. Við erum bæði þingmenn kjördæmis þar sem eru mikil landbúnaðarhéruð og það vekur athygli mína að í nefndaráliti meiri hlutans kemur fram að, með leyfi forseta, „tollvernd á landbúnaðarvörur frá öðrum aðildarríkjum myndi falla niður með aðild að tollabandalagi ESB.“ Tollvernd á landbúnaðarvörur fellur niður. Fyrir mér er þetta fullkomlega óásættanlegt og mér finnst bara verið að kasta handklæðinu inn áður en til kastanna kemur. Ég geri mjög alvarlegar athugasemdir við þetta tiltekna atriði í nefndaráliti meiri hlutans vegna þess að verði þetta gert þá eru alvarlegar áhyggjur uppi um að þetta geti hreinlega gert út af við íslenskan landbúnað, þetta geti hreinlega gert út af við byggð á tilteknum svæðum. Þá langar mig að spyrja þingmanninn Ólaf Adolfsson: Finnst honum, með tilliti til þess sem ég sagði hér og þess sem kemur fram í áliti meiri hlutans, það boðlegt að fella niður tollvernd á landbúnaðarvörur frá Evrópusambandslöndum, þ.e. ef við göngum þar inn? Finnst honum það tikka í það box að stuðla hér að innlendri matvælaframleiðslu og fæðuöryggi? Ég tel það orka þveröfugt.