þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég ætla að taka undir með hv. þingmanni og ég er sammála henni í því að við munum — og kannski yrði það tilbreyting fyrir Evrópusambandið — borga inn í til sambandsins. Við erum nettógreiðendur. Þó að það hafi stundum verið látið líta þannig út að við gætum í rauninni fengið ansi margt frá Evrópusambandinu þá held ég að það sé óumdeilt að við munum verða nettógreiðendur inn í sambandið og svo geta menn karpað um hver sú tala er en það á nú væntanlega eftir að koma betur í ljós þegar menn fara að kafa ofan í þetta.
Varðandi ræðutímann sem ætlaður er í þetta mál þá hefur dagskráin komið frá ríkisstjórninni. Það liggur fyrir hverjar væntingar eru um þennan dagafjölda. Hvort það er vika til eða frá myndi í mínum huga í sjálfu sér ekki miklu breyta varðandi umræðuna. Það verklag sem er viðhaft, mér sýnist alla vega að meiri hlutinn sé tiltölulega ánægður með það. Svo er það auðvitað okkar í minni hlutanum að meta hvort okkur finnist komið nægilega vel að þeim vafaatriðum og því sem mögulega mætti betur fara. Auðvitað er það alltaf þannig, að ég ætla að leyfa mér að segja það, að meiri upplýsingar eru betri en minni en nú geta menn samt endalaust deilt um hvað sé skynsamlegur tími í þessu. Ég held hins vegar að þessi umræða sé alveg með knappasta móti. Ég held að utanríkismálanefnd hafi þurft að halda mjög vel á spöðunum til að koma að öllum þessum aðilum sem þar komu til að veita umsögn og ég vil meira að segja hrósa nefndinni fyrir að hafa náð öllum þessum aðilum, en það var klárlega pláss fyrir fleiri.