þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Hér erum við að ræða aðdraganda að einu stærsta hagsmunamáli þjóðarinnar, þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi viðræður við Evrópusambandið. Það hefur kannski aðeins legið á milli hluta í umræðunni hvort um samningaviðræður sé að ræða eða aðildarviðræður. Þó að vissulega geti það skipt máli þá hefur maður líka skilning á því að í eyrum margra sé það einhvers konar rifrildi um keisarans skegg. Í grunninn er um risastórt mál að ræða og maður hefði haldið og gefið sér fyrir fram eða leyft sér að gefa sér það fyrir fram að á því yrði haldið eins vel og mögulegt væri. Öll umræða og upplýsing varðandi málið væri skýr, aðgengileg og án undanbragða eða útúrsnúninga eða hún hreinlega ætti sér ekki stað. Því miður hefur borið á því að í þessu stóra máli hafa margir hv. stjórnarliðar gerst sekir um að vera uppteknari af frösum og einföldun í stað þess að ræða efni máls á dýptina, sem ekki bara þingheimur heldur þjóðin öll á skilið í aðdraganda svo mikilvægs máls.
Auðvitað er hér í botn og grunn aðalatriðið hvort Ísland eigi að ganga inn í Evrópusambandið. Það er að sjálfsögðu aðalmálið. Fyrir mitt leyti, svo að ég sé alveg skýr, þá er ég í rauninni undrandi á því að við séum yfirhöfuð að velta því fyrir okkur hvort við eigum erindi þangað inn eða hvort hagsmunum okkar sé betur borgið þar, því að í mínum huga er svarið algjörlega kýrskýrt, að svo sé alls ekki. Og ég er, frú forseti, eiginlega hissa á því að hv. stjórnarliðar skuli vera tilbúnir til að fara í þessa vegferð, fyrir utan hvað hún er kostnaðarsöm og tekur mikla athygli frá öðrum mikilvægum verkefnum í samfélaginu, því að í mínum huga er svarið algjörlega augljóst: Við ættum miklu frekar að einbeita okkur að því að hlúa að því sem við höfum hér og gera það eins vel og við mögulega getum í staðinn fyrir að fara í þessa vegferð til Brussel, eins og svo oft er sagt, þar sem í mínum huga er augljóst að hagsmunum okkar er ekki betur borgið þar.
Að því sögðu, frú forseti, þá ber ég virðingu fyrir því að í þessu máli sem liggur hér fyrir framan okkur á að spyrja þjóðina þessarar spurningar og ég vil segja að mér finnst ríkisstjórninni það til hróss að ætla að leggja þessa spurningu fyrir þjóðina. Hún hefði getað farið út í þessar aðildarviðræður án þess að spyrja þessarar spurningar þannig að ég vil segja skýrt að mér finnst það ríkisstjórninni til hróss að gera það. En þar með lýkur hróskafla þessarar ræðu því að mér finnst alvarlegt hvað það kemur í rauninni aftan að mörgum, miðað við hvað er stutt frá síðustu kosningum, þar sem það lá alls ekki fyrir að þetta yrði áhersluatriði nýs kjörtímabils nema síður sé og mér finnst, þrátt fyrir að ég telji það ríkisstjórninni til hróss að spyrja þjóðina, alls ekki sama hvernig það er gert. — Hér fæ ég aðstoð frá hv. varaformanni utanríkismálanefndar og þakka honum fyrir sitt framlag í þessa ræðu og ég biðst afsökunar á þessum hósta, frú forseti. En þó að það sé hægt að hrósa ríkisstjórninni fyrir að ætla að spyrja þjóðina þá er alls ekki sama hvernig það er gert. Mér finnst ríkisstjórnin satt best að segja ekki hafa haldið vel á þeirri upplýsingagjöf sem henni ber að gera í aðdraganda svona stórs máls.
Ég kom inn á að það hefði farið meira fyrir frösunum heldur en um hvað málið raunverulega snýst. Það sáust merki þess strax í upphafi málsins að það var svona nánast svarað með þjósti þeim sem settu spurningarmerki við þessa vegferð, hvort hún væri skynsamleg, hvort það væri raunhæft að fara út í svona viðamikil verkefni þegar það er ekki einu sinni eining innan ríkisstjórnarinnar um að ganga inn í Evrópusambandið o.s.frv., og sagt með þjósti hvort þeir sem voru að spyrja sig þessarar spurningar treystu ekki þjóðinni, sem mér finnst ekki endilega maklegt því að eitt er að treysta þjóðinni en þá verður líka að veita þjóðinni allar þær upplýsingar sem henni ber að hafa hjá sér til að geta gert upp hug sinn í þessu stóra máli.
Annað sem hefur verið notað mikið er að hér sé eingöngu um það að ræða að sækja sér meiri upplýsingar, þetta snúist eingöngu um að veita ríkisstjórninni eða samningamönnum hennar umboð til að athuga hvers konar samningur gæti verið í boði, einfaldlega að fá meiri upplýsingar. Ég skil vel að það hljómi vel. Hver vill ekki fá meiri upplýsingar? En ég staldra við og spyr mig að því af hverju ríkisstjórnin og hv. stjórnarliðar hafa augljóslega tiltölulega lítinn áhuga á að ræða og koma fram með þær upplýsingar sem nú þegar liggja fyrir varðandi Evrópusambandið, sem hefur ekkert að gera með tilvonandi meintar samningaviðræður, hefur ekkert með þær að gera. Burt séð frá því hvað kemur úr því samtali þá liggja fyrir ákveðnar staðreyndir varðandi Evrópusambandið og aðild Íslands að Evrópusambandinu sem hefur ekki verið gefinn mikill gaumur. Það er ekki gerð sú krafa að sumarmánuðirnir fari í að upplýsa þjóðina um það. Þar komum við að tímasetningu þessarar atkvæðagreiðslu sem auðvitað vekur upp spurningar. Að sjálfsögðu gerir þessi tímasetning það, það blasir við, fyrir utan að það hafa engin rök verið færð fyrir nauðsyn þessarar tímasetningar, engin, nema eitthvað óljóst um að glugginn sé opinn núna eða eitthvað slíkt. Að sjálfsögðu yrði þessi meinti gluggi jafn mikið opinn eftir tvær vikur eða fjórar vikur eða hvað það er. Auðvitað er áhyggjuefni að þessi tímasetning sé í lok sumarfría þegar landinn er nú alla jafna upptekinn af öðrum hlutum eins og hvaða sundlaug eigi að heimsækja næst eða hvað eigi að setja á grillið eða hvað það er. Þá á að spyrja þjóðina þessarar spurningar vitandi að þingið er ekki að störfum. Ef það koma fram einhverjar nýjar upplýsingar eða það gerist eitthvað nýtt þá hefur þingið ekki færi á að bregðast við því. Landskjörstjórn gerði eðlilega athugasemd við þessa tímasetningu og hafði áhyggjur af því að landskjörstjórn sjálfri, sem hefur það hlutverk að lögum, að sjá um ákveðna fræðslu, yrði það erfitt um vik svona beint ofan í sumarfríin. Engu að síður er þetta niðurstaðan. Stjórnarmeirihlutinn hyggst ekki víkja frá þessari dagsetningu. Ég verð að spyrja mig: Af hverju ekki? Af hverju er tímasetningunni ekki hnikað til um nokkrar vikur? Gallarnir við það eru, alla vega í mínum huga, ekki augljósir, ég átta mig ekki á því hverjir þeir ættu að vera en kostirnir eru náttúrlega augljósir gagnvart þeim atriðum sem hér hafa verið rakin. En gott og vel, þetta liggur fyrir.
Það sem ég spyr mig að er að það virðist ekki eiga að upplýsa þjóðina um þessar staðreyndir um ESB sem liggja fyrir. Mig langar þá kannski helst að nefna staðreyndir um Evrópuréttinn sjálfan. Nú held ég að það sé rétt að nefna, frú forseti, þar sem ég hef hlýtt á umræður hér í þinginu um þetta mál, að mér virðist sem það sé ákveðinn misskilningur uppi um eðli Evrópuréttarins og ég hef heyrt ýjað að því og jafnvel fullyrt að þar sem Ísland eigi nú í alls konar alþjóðasamningum með alþjóðasamstarfi sé það bitamunur en ekki fjár að ganga inn í Evrópusambandið og undirgangast Evrópuréttinn. Ég tel því rétt að staldra aðeins við hér, frú forseti, og nota tækifærið og segja mjög skýrt að það er algjör eðlismunur á því að undirgangast Evrópuréttinn eins og hann myndi líta út gagnvart Íslandi ef við myndum ganga inn í Evrópusambandið og að undirgangast þann Evrópurétt að hluta til með samningi okkar um Evrópska efnahagssvæðið, EES-samningnum. Evrópuréttur Evrópusambandsins kveður á um svokallað yfirþjóðlegt vald, frú forseti, sem felur í sér að hluti af því fullveldi sem við búum við í dag yrði í rauninni framseldur til Brussel og með mjög miklu valdaframsali á löggjafarvaldi, framkvæmdarvaldi og dómsvaldi. Ekkert af þessu er sambærilegt við Evrópuréttinn eins og við þekkjum hann í EES-samningnum. Það er engan veginn sambærilegt. Mér hefur fundist skrýtið að ég hef heyrt fáa, ef einhverja, stjórnarliða fara yfir þennan þátt málsins. Ég endurtek og ítreka að hann hefur ekkert að gera með það sem kemur upp úr meintum samningaviðræðum sem snúast um efnisatriði máls. Þetta er Evrópurétturinn eins og hann liggur fyrir og það liggur fyrir að innganga í ESB þýðir að við undirgöngumst þetta yfirþjóðlega vald ESB með þessu yfirgripsmikla valdaframsali á löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvaldi. Mér finnst skrýtið þegar við stöndum hér í þessum sal og Jón Sigurðsson fylgist hérna með okkur og við stöndum fyrir framan fánann, að fólki almennt hugnist það. Mér finnst það skrýtið. Ég ber virðingu fyrir þeim skoðunum en mér finnst skrýtið að fólki almennt hugnist það að sitja við borðið eða hafa aðkomu að málum þegar við vitum hvað við erum ótrúlega fá í því samhengi öllu saman. Við vitum alveg hvað það er erfitt að hafa áhrif. Við í stjórnarandstöðunni ráðum nær engu hér í þessum sal þótt ég viti að þetta er ekki sambærilegt en við vitum líka hvað fulltrúar Íslands og Ísland yrði lítið í þessu samhengi öllu saman. Það er skrýtið að hugsa til þess að fólki finnist í raun góð hugmynd að við framseljum þetta vald frá okkur sisvona.
Það sem er líka skrýtið er að samningsmarkmiðin eru almennt orðuð og það er líka skrýtið að það er vísað í markmið í reyndar mjög góðu nefndaráliti frá fyrri utanríkismálanefnd á árunum 2009–2013, vísað í þau en það er samt dregið úr þeim, sérstaklega varðandi sjávarútveg og landbúnað. Það vekur upp ákveðnar spurningar, ekki síst í ljósi þess að við höfum lengi kallað eftir því að það væri sjálfsagt — af því að það hefur að gera með þá atkvæðagreiðslu sem bíður þjóðarinnar núna í lok ágúst að öllum líkindum — að vita hvað er að sækja. Eitt er staðreyndin með Evrópuréttinn, eins og ég er búin að rekja, en hitt er spurningin, burt séð frá því hvernig samningaviðræðurnar ganga: Hverjar eru kröfur Íslands? Það þarf að gefa fólki raunverulegt tækifæri til að ákveða hvort því finnist það milljarðs króna virði að fara í það samtal eða ekki. Hverjar verða kröfur Íslands? Hvar liggja sársaukamörkin? Hver verður skóggangssökin í þessu samtali? Það liggur ekki fyrir.
Svo bætist í ofanálag, frú forseti, núna á síðustu dögum fyrir lokaafgreiðslu málsins, að hæstv. forsætisráðherra, fulltrúi framkvæmdarvaldsins, kemur og segir: Það verður ekki seinni atkvæðagreiðsla í málinu ef mér hugnast það ekki. Gott og vel. Látum liggja milli hluta hvað það er gengið freklega á vinnu löggjafans sem er hinn lagalegi grundvöllur þessa máls gagnvart þjóðinni. Látum liggja milli hluta hversu freklega á það allt saman er gengið. En hverjar eru línurnar í huga hæstv. forsætisráðherra? Ekki veit ég það. Og hver veit það þá? Ef forsætisráðherra veit það, væri þá ekki rétt að fá að heyra hvar línurnar liggja? Þessi orð kalla líka fram alls konar aðrar vangaveltur eins og: Bíddu nú við, verður þá ákveðið að setja viðræðurnar í frost eða myndum við reyna aftur síðar eða verður þessu hafnað eða verður þetta enn þá á lífi, mun þetta vera hangandi yfir íslensku samfélagi í mörg ár eða ekki? Ég veit það ekki, ég er ekki að fullyrða neitt, ég er bara að segja að ég hef ekki hugmynd. Við lokaafgreiðslu málsins vitum við hreinlega ekki hvort í miðju samtali eða hvernig svo sem það verður skilgreint þá verði íslensk þjóð látin vera í lausu lofti með þetta. Það er ekki boðlegt. Hér er undir allt of mikið hagsmunamál, risastórt hagsmunamál, jafnvel stærsta hagsmunamál þjóðarinnar og það er ekki í lagi að grunngögn málsins, eftir lagalegt ferli þrátt fyrir að það megi ýmislegt um það segja, stangist á við orð hæstv. forsætisráðherra.
Það hefur einnig verið imprað á því, og ég spurði hæstv. utanríkisráðherra að því, að það séu áhyggjur af því hversu margir hafa fullyrt að svona samtal við ESB sé í rauninni aðlögunarsamtal. Það hefur verið fullyrt svona í almennri orðræðu að engin aðlögun myndi eiga sér stað þannig að ég spurði hæstv. utanríkisráðherra út í það. Ég fékk svar á dögunum þar sem það er staðfest að það er opið fyrir ákveðna aðlögun ef það verður metið nauðsynlegt og þá í samráði við þingið, þannig að svarið við því er já. Ég skal alveg viðurkenna að það að hæstv. ríkisstjórn og stjórnarmeirihlutanum hér finnist nauðsynlegt að gera einhverjar breytingar í þágu þessa samtals undirstrikar kannski að það sé hreinlega opið fyrir þessa aðlögun. Ég held að það sé ákveðið áhyggjuefni því að það er eitthvað sem íslensk þjóð verður að hafa algerlega á hreinu, þ.e. hvort það verði opnað á einhvers konar aðlögun að reglum ESB áður en þjóðin fær að segja hvort hún hafi áhuga á að aðlagast reglum ESB.
Tíminn hleypur merkilegt nokk frá okkur, kannski af því að ég eyddi þriðjungi tímans í að hósta hérna og biðst afsökunar á því. En kannski bara í blálokin vil ég segja að mér finnst stjórnarliðar nota það sem kallað er kirsuberjatínsla upp á ensku, því er slengt svona fram að það séu lægri vextir í Evrópu og lægri verðbólga. Vissulega í einhverjum löndum en alls ekki öllum. Það er ekki til neitt sem heitir Evrópuvextir eða Evrópuverðbólga, það er ekki til. Mér finnst vanta í þá umræðu þá staðreynd að það er krafa ESB samkvæmt Maastricht-skilyrðum svokölluðum að Ísland sjálft þurfi að ná niður verðbólgu og vöxtum til þess að vera gjaldgengt í umræðum um evru. Það er Ísland sjálft sem þarf að gera það og það gerist ekki sjálfkrafa.
Í lokasetningum mínum ætla ég að leyfa mér að spyrja: Við erum með land með einn mesta kaupmátt launa. Við erum vissulega með hátt matarverð en við erum með lágt hlutfall af launaseðlinum sem fer í matarverðið. Við búum hér í einu besta samfélagi í heimi. Mér finnst ekki í lagi að smætta þá stöðu niður í svona kirsuberjatínslu um ákveðnar hagstærðir sem standast ekki einu sinni grunnskoðun og er fullyrðingaglöð. Ég hef áhyggjur af því að stjórnarliðar leyfi sér að tala með slíkum hætti í því risamáli sem hér er undir.