þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir gott andsvar. Mig langar aðeins að ræða við hana í seinna andsvari um landbúnaðinn. Ég komst ekki í það í seinni ræðu minni að tala um umsögn Bændasamtakanna og ég held að þingmaðurinn hafi ekki farið djúpt í landbúnaðinn í sinni ræðu, alla vega fór það þá fram hjá mér. Það kemur fram í umsögn Bændasamtakanna og í mjög mörgum umsögnum að það hafi engin ný aðildarríki fengið varanlegar undanþágur frá grunnreglum sambandsins, enda myndi slíkt krefjast breytinga á stofnsáttmálum ESB og krefst að sama skapi samþykkis allra aðildarríkja.
Hér segir í umsögn Bændasamtakanna, með leyfi forseta:
„Óvissan vegna aðildarviðræðna, eða mögulegra aðildarviðræðna, er landbúnaðinum ákaflega skaðleg þar sem hún hefur kælandi áhrif á fjárfestingar í landbúnaði, einkum ef viðræðurnar dragast á langinn. Stuðningskerfi landbúnaðar í ESB er í grundvallaratriðum gjörólíkt íslensku stuðningskerfi, sem grundvallast á samningum milli bænda og stjórnvalda. Niðurstaða aðlögunar að svo ólíku kerfi getur verið gjörólíkur innlendur landbúnaður.“
Bændasamtökin hafa gríðarlegar áhyggjur og bændur þessa lands, ef við segjum sem svo að við förum í þessar aðildarviðræður og það verður komið heim með samning, vegna þess að í nefndaráliti meiri hlutans kemur beinlínis fram að frá fyrsta degi, ef við göngum í Evrópusambandið, verði tollvernd felld niður á vörur frá Evrópusambandsríkjum. Tollvernd er gríðarlega mikilvæg (Forseti hringir.) innlendri matvælaframleiðslu og mig langar að spyrja þingmanninn: (Forseti hringir.) Finnst henni ekki furðulegt að leggja af stað í þessa vegferð vitandi það að þessi ríkisstjórn ætlar sér (Forseti hringir.) að fella niður tollvernd?
(Forseti (EÁs): Forseti biður hv. þingmenn að virða ræðutíma.)