157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:45]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinna andsvarið. Mér finnst það jafn skrýtið og þessi vegferð öll yfirhöfuð. Það er mín skoðun því að ég get með engu móti séð að hagsmunum Íslands sé betur borgið með aðild að Evrópusambandinu, algjörlega burt séð frá því hvað þessum samningaviðræðum líður eða hver niðurstaðan verður.

Varðandi landbúnaðinn hef ég aðeins verið hugsi og kom aðeins inn á það að það vekur upp ákveðnar spurningar að það sé í einu orðinu vísað í nefndarálit þáverandi utanríkismálanefndar í viðræðunum hinum fyrri, ef við getum sagt sem svo, en hins vegar er dregið úr ákveðnum samningskröfum í núverandi áliti. Varðandi landbúnaðinn þá t.d. slær meiri hlutinn núna af þeim kröfum sem gerðar voru í meirihlutaálitinu frá 2009 þar sem sagði, með leyfi forseta:

„Mikilvægt er að Ísland nýti sér og skoði eftir atvikum hvort nauðsyn beri til að útvíkka gildandi reglur ESB til að ná fram heimildum fyrir Ísland til að tryggja sem best stöðu íslenskra bænda.“

Sambærileg krafa er ekki í uppfærðum samningsmarkmiðum meiri hlutans nú. Þessa kröfu er ekki að finna þannig að augu meiri hlutans eru greinilega galopin fyrir því að gera minni kröfur hvað þetta varðar. Þá er hvergi vikið að því markmiði að skilgreina allt Ísland sem svæði norðurslóðalandbúnaðar og sem harðbýlt svæði, líkt og var áður gert. Það er heldur ekki verið að sækjast eftir tímabundinni eða varanlegri undanþágu frá markaðseftirliti með innfluttum matvælum vegna landfræðilegra aðstæðna, sem var gert þá. Ekkert af þessu er gert núna, ekki neitt. Ég get því ekki betur séð, frú forseti, þar sem það er greinilega svo mikil meðvitund í því að taka suma hluti út úr álitinu frá fyrri viðræðunum en samt er þessum atriðum sleppt, en að hér eigi að fórna þessum hagsmunum.