þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mig langar að reyna að varpa ljósi á hvað gerist ef þjóðin segir já í ágúst og halda aðeins áfram með þær umræður sem hafa átt sér stað hér fyrr í dag. Því langar mig að spyrja hv. þingmann hvort hún átti sig á því að ef viðræður sigla í strand, eins og þær gerðu síðast, hvort hæstv. forsætisráðherra ákveði upp á sitt eindæmi að þar með verði viðræðum hætt eða hvort þetta sé bara afsökun að mati hv. þingmanns til þess að þurfa ekki að loka viðræðunum af því að þær eru komnar í strand og við getum þá kannski tekið upp þær aftur. Eða: Ef þær sigla í strand, munum við þá ekki lengur vera umsóknarríki? Nú liggur fyrir að við erum ekki lengur umsóknarríki, við drógum umsóknina til baka, en Evrópusambandið ákvað upp á sitt eindæmi að halda henni virkri, en þó ekki virkari en svo að mögulega þurfa öll aðildarríkin að samþykkja okkur ef við sækjum um aftur.
Mig langar líka að benda á að síðasta land sem gekk í Evrópusambandið er Króatía. Það var í átta ár í aðildarviðræðum. Áttar hv. þingmaður sig á af hverju hæstv. utanríkisráðherra virðist telja að þetta geti tekið okkur tvö ár? Einnig vil ég benda á að Króatía fékk engar varanlegar undanþágur, engar. Samningurinn snýr einungis að því hvernig þau ætla að aðlagast sambandinu. Því langar mig líka aðeins að spyrja hv. þingmann hvort hún átti sig á af hverju er verið að halda því fram að Ísland geti allt í einu fengið fullt af varanlegum undanþágum þegar engin önnur lönd eru að fá þessar undanþágur.