157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:52]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka svarið. Mig langaði hérna í seinna andsvari að fá að ræða aðeins það sem mér hefur þótt vanta í umræðuna, þ.e. þessar styrkveitingar frá Evrópusambandinu, vegna þess að ég veit að sumir vilja ganga inn í Evrópusambandið og aðrir ekki. Þeir sem vilja ganga inn eru yfirleitt með rök um vexti og lægri verðbólgu en engu að síður liggur fyrir að við þurfum að ná tökum á okkar málum heima áður en við tækjum til að mynda upp evruna. Hins vegar er alltaf verið að vitna í að við fengjum svo mikið af styrkjum. Persónulega finnst mér það mjög neikvætt af því að styrkir eru bara peningar sem við erum búin að borga inn með sköttunum okkar og svo er þeim deilt út. Ég held að heilt yfir sé ríkið yfirleitt ekki best til þess að deila út endalaust af styrkjum og hvað þá Evrópusambandið. Þetta eru einhvers konar rök, að núna getum við sótt í styrki Evrópusambandsins. Því er fyrsta spurningin: Er hv. þingmaður ekki sammála mér um að þetta sé bara skattfé almennings? Í öðru lagi, er það ekki líklegt að við myndum borga meira inn en við fáum út? Er ekki nokkuð sannað eða staðreynd að bákn eins og Evrópusambandið geti aldrei keppt við eitthvað sem er kvikara þegar kemur að styrkveitingum og hvað þá að fylgja því eftir þannig að þessar styrkveitingar skili árangri? Erum við þá ekki bara komin á stað þar sem ríkið er orðið miklu stærra en það er í dag fyrir okkur, Ísland, og allar þessar ákvarðanir færast lengra frá okkur? Ég óttast að skattfé almennings nýtist enn verr. Hefur þingmaðurinn skoðun á þessu?