157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[16:56]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Boðuð atkvæðagreiðsla um framhald viðræðna við Evrópusambandið er eitt mikilvægasta viðfangsefni Alþingis um langt skeið. Þetta vitum við öll en okkur greinilega verulega á um forsendur og samhengi þeirrar atkvæðagreiðslu sem allt stefnir í að fari fram 29. ágúst nk. En áður en lengra er haldið vil ég, með leyfi forseta, gera að umtalsefni orð hæstv. forsætisráðherra sem varða eitt af kjarnaatriðum boðaðrar atkvæðagreiðslu. Forsætisráðherra hefur nefnilega lýst því yfir að hún muni ekki leggja lélegan samning fyrir þjóðina. Við þetta vaknar ein grundvallarspurning lýðræðisins: Hver á að meta það hvort samningurinn sé efnislega góður? Er það hæstv. forsætisráðherra? Er það ríkisstjórnin, einstaka ráðherrar, sérstök nefnd eða þjóðin sjálf? Boðuð atkvæðagreiðsla og framhald hennar varðar framtíðarsýn fyrir Ísland, fullveldi þjóðarinnar, forræði yfir auðlindum landsins og grundvallarspurninguna hvernig við viljum að ákvarðanir um framtíð þjóðarinnar séu teknar.

Það er mikilvægt að taka það fram hér að við í Framsókn erum ekki mótfallin því að þjóðin fái að segja sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þvert á móti teljum við eðlilegt að þjóðin hafi lokaorðið í jafn afdrifaríku máli. En það eitt og sér að efnt sé til þjóðaratkvæðagreiðslu tryggir ekki sjálfkrafa vandaða eða lýðræðislega niðurstöðu. Lýðræðið byggist ekki eingöngu á því að fólk gangi inn í kjörklefann og greiði sitt atkvæði. Lýðræði byggist á því að almenningur hafi aðgang að upplýsingum, að umræðan sé heiðarleg, gagnsæ og efnisleg og að fólk fái raunverulegt tækifæri til að mynda sér upplýsta skoðun áður en gengið er til atkvæða.

Það er einmitt þar sem ég tel að ríkisstjórnin hafi brugðist. Of oft hefur umræðan verið færð niður á það plan að nóg sé að kasta fram einföldum fullyrðingum eins og: Viljum við ekki lægri vexti? Viljum við ekki ódýrara húsnæði, að kaffibollinn sé ódýrari og betri lífskjör? Auðvitað viljum við öll slíkt. En jafn stór ákvörðun og möguleg aðild að Evrópusambandinu verður ekki tekin á grundvelli slagorða eða einfaldra loforða. Það þarf að leggja fram gögn, greiningar og efnisleg rök. Það þarf að ræða bæði kostina og gallana af yfirvegun og ábyrgð og þegar ég hef fylgst með umræðunni hér í þingsal og eins bara í samfélaginu er það einmitt það sem mér finnst tilfinnanlega skorta. Það hefur ekki verið sýnt fram á það með sannfærandi hætti hvernig Ísland eigi að fara í þessa vegferð. Hvað er það nákvæmlega sem við erum að sækja í núna? Hvaða vandamál er það sem aðild að Evrópusambandinu á að leysa sem við getum ekki leyst hér sjálf? Og hvaða verð þarf Ísland að greiða fyrir slíkt?

Við í Framsókn teljum að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan Evrópusambandsins og innan EES-samningsins. Ástæður þess eru bæði efnahagslegar, stjórnskipulegar og þjóðhagslegar. Í fyrsta lagi snúast aðildarviðræður og aðildin sjálf um auðlindaforræði þjóðarinnar. Ísland byggir afkomu sína að stórum hluta á staðbundnum og takmörkuðum auðlindum: fiskimiðunum, orkunni, landinu og náttúrunni sjálfri. Sjávarútvegur og orkufrekur iðnaður standa síðan saman undir þriðjungi af útflutningsverðmætum þjóðarinnar. Forræði þessara auðlinda má ekki veikjast. Það verður ekki tekið til baka. Þess vegna tel ég að ákvarðanir um nýtingu þeirra eigi áfram að vera teknar hér á landi af íslenskum stjórnvöldum og íslensku þjóðinni.

Í öðru lagi tel ég að menn verði einnig að horfa á reynslu annarra af yfirvegun. Það er athyglisvert að ekkert nágrannaríkja Íslands í Norður-Atlantshafi hefur séð hag sinn í því að ganga í Evrópusambandið. Þá er einnig athyglisvert að öll Norðurlöndin utan Finnlands hafa ákveðið að standa utan evrunnar. Ef evran væri sjálfkrafa lausnin við öllum efnahagsvanda, ef hún tryggði sjálfkrafa lægri vexti, stöðugleika og betri lífskjör, hvers vegna hafa Danir og Svíar þá ákveðið að taka hana ekki upp? Hvers vegna hefur Noregur kosið að standa utan Evrópusambandsins? Þetta eru allt spurningar sem okkur hefur ekki tekist að fá svör við vegna asans í málinu og í þinglegri meðferð.

Við þurfum líka að ræða það heiðarlega að Evrópusambandið í dag er ekki sama samband og það var fyrir 20 og 30 árum. Við sjáum aukna miðstýringu. Við sjáum vaxandi skrifræði og flutning valds frá þjóðríkjum til Brussel og það er staðreynd. Þetta er þróun sem hefur sett mark sitt á umræðuna í mörgum aðildarríkjum. Ef við horfum aðeins á og tölum um hvernig valdakerfi Evrópusambandsins virkar í raun og veru þá sjáum við það að stórar þjóðir eins og Þýskaland og Frakkland geta með meiri hluta sínum í rauninni mótað stefnu sambandsins. Ef Ísland gengur í Evrópusambandið erum við líka að samþykkja þann veruleika að ríki með um 380.000–400.000 íbúa taki þátt í sambandi ríkja með tugi milljóna íbúa og við sjáum fram á það að Ísland myndi hugsanlega hafa í kringum sex þingmenn af rúmlega 700.

Virðulegi forseti. Það er líka mikilvægt að horfa til þess hvernig ríki hafa staðið sig efnahagslega á síðustu árum. Þegar litið er til þeirra ríkja sem hafa staðið hvað sterkust hvað varðar hagvöxt, kaupmátt og lífskjör almennings þá eru það einmitt Norðurlöndin, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Það sýnir okkur að ríki geta náð mjög góðum árangri án þess að vera hluti af evrusvæðinu. Sama má segja þegar horft er til fjármálakreppunnar. Ísland reis hraðar upp eftir hrunið en mörg Evrópuríki sem voru bundin í Evrópusambandinu. Grikkland sem var innan Evrópusambandsins og evrusvæðisins hafði t.d. mun minna svigrúm til að bregðast við sínum vanda á sjálfstæðan hátt.

Virðulegi forseti. Síðast en ekki síst er mikilvægt að ræða sjálft lýðræðislega lögmætið. Í minnihlutaáliti okkar í Framsókn leggjum við m.a. til að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar teljist aðeins gild ef lágmarksþátttaka næst, t.d. 50% landsmanna. Það tel ég vera eðlilega kröfu í jafn afdrifaríku máli og ég tel að við þurfum einnig að ræða aðra hlið þessa máls: Hvernig tryggjum við að niðurstaðan endurspegli ekki eingöngu vilja höfuðborgarsvæðisins, sem dæmi, heldur raunverulega, breiða, þjóðfélagslega sátt? Þar er gagnlegt að horfa til annarra ríkja sem hafa reynslu af þjóðaratkvæðagreiðslum, eins og t.d. Sviss. Þar eru ákveðin grundvallarmál ekki aðeins samþykkt með einföldum meiri hluta þjóðarinnar heldur þarf einnig meiri hluta svokallaðra kantóna eða kjördæma, svokallaðan tvöfaldan meiri hluta. Hugmyndin sem býr þar að baki er að fjölmennustu svæðin eigi ekki ein og sér að hafa lokaorðið í málum sem geta haft djúpstæð áhrif á allt ríkið til framtíðar.

Nú er ég ekki að segja að Ísland eigi einfaldlega að taka upp svissneskt kerfi óbreytt en umræðan er engu að síður mikilvæg vegna þess að þetta mál snertir landið allt og þetta atriði hefur í rauninni ekki fengið rými inni í umfjöllun um málið. Þetta snertir sjávarbyggðirnar, þetta snertir orkusvæðin, landsbyggðina og byggðirnar sem standa undir verðmætasköpun þjóðarinnar og framtíð íslensks sjálfstæðis. Þá finnst mér ekki óeðlilegt að við ræðum hvort mál af þessari stærðargráðu þurfi breiðari þjóðlega sátt en einfaldan meiri hluta á einum tímapunkti.

Ég tel að eitt stærsta álitaefnið í þessari umræðu snúist ekki aðeins um það hvort efna eigi til þjóðaratkvæðagreiðslu heldur einnig hvernig slíkt ferli á að vera byggt upp ef þjóðin kýs að fara áfram í þessa vegferð. Í fyrsta lagi tel ég algjörlega nauðsynlegt að samningsmarkmið Íslands liggi skýrar fyrir áður en þjóðin er beðin um að taka afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er einfaldlega ekki nægilega vandað stjórnarfar að biðja þjóðina um að samþykkja aðildarviðræður án þess að fyrir liggi hvaða hagsmuni íslensk stjórnvöld hyggjast verja, hvaða rauðu línur séu til staðar og hvaða atriði séu ófrávíkjanleg fyrir íslenska þjóð. Í minnihlutaáliti okkar bendum við einmitt á það að meiri hlutinn hafi ekki sett fram sambærilega skýr og bindandi samningsmarkmið og gert var árið 2009. Það er að mínu mati verulegur annmarki á málinu því að þjóðin á rétt á að vita og þarf að fá að vita það áður en gengið er til atkvæða hvaða hagsmuni ríkisstjórnin hyggst verja og hvar mörkin liggja.

Í öðru lagi tel ég mikilvægt að ef þjóðin kýs já í ágúst verði ferlið ekki lokað inni í ráðuneytum eða á bak við luktar dyr næstu mánuði og ár á eftir því að þá þarf að taka við skýrt ferli með reglulegum vörðum á leiðinni þar sem þjóðinni eru veittar upplýsingar um stöðu viðræðna, hvað hafi áunnist, hvaða kröfur Evrópusambandið geri og hvaða mál séu hreinlega komin í hnút. Þetta er vissulega vandmeðfarið og kannski ekkert einfalt í framkvæmd en það þarf samt sem áður að huga að þessu því að Ísland þarf að nálgast þetta mál með áherslu á opna umræðu og ítarlega upplýsingagjöf.

Virðulegi forseti. Mér þykir líka mikilvægt að ræða annað atriði sem ég tel að standist illa í málflutningi ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnarflokkarnir segja að þeir treysti þjóðinni og að þjóðin eigi að fá að taka ákvörðun sjálf en á sama tíma hefur forsætisráðherra gefið til kynna að hún muni ekki leggja lélegan samning fyrir þjóðina. Þar vaknar eðlilega upp spurning og hugsanlega spurningar af því hver á í rauninni að meta gæði samningsins? Er það ríkisstjórnin eða forsætisráðherra eða er það þjóðin sjálf? Hver metur það hvað er lélegur samningur? Hver metur það hvað er góður samningur, sérstaklega í ljósi þess að við vitum ekki hver samningsmarkmiðin eru fyrir fram? Ef þjóðin á að hafa lokaorðið hlýtur hún að eiga rétt á því líka að sjá niðurstöðuna og meta sjálf hvort samningurinn sé ásættanlegur eða ekki. Annars erum við að mínu mati komin inn á mjög sérkennilega braut þar sem framkvæmdarvaldið ætlar fyrst að ákveða hvaða samningur teljist nógu góður til að þjóðin fái yfir höfuð að sjá hann. Hlutverk ríkisstjórnarinnar er auðvitað að semja eins vel og hún getur fyrir hönd Íslands en hlutverk þjóðarinnar hlýtur að vera að meta sjálf hvort niðurstaðan sé ásættanleg. Það er að mínu mati sjálfur kjarni þjóðaratkvæðagreiðslu.

Ef við horfum til umræðunnar og framkvæmdarinnar í kringum þessa þingsályktunartillögu er afar mikilvægt að það liggi fyrir hvaða markmið Ísland setur sér, hvaða hagsmuni við ætlum að verja til hins ýtrasta, hvernig þjóðin verður upplýst meðan á ferlinu stendur og að þjóðin sjálf, ekki ríkisstjórnin heldur þjóðin sjálf, hafi raunverulega lokaorðið um niðurstöðuna.

Síðustu misseri hafa sýnt okkur hversu viðkvæm lýðræðisleg umræða getur orðið, frú forseti, og upplýsingaóreiða hefur aukist hratt um allan heim. Samfélagsmiðlar, sjálfvirk vélmenni, skipulagðar áhrifaherferðir og erlendir hagsmunaaðilar geta haft áhrif á almenningsálitið með áður óþekktum hætti. Þess vegna tel ég að stjórnvöld verði að nálgast undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslunnar af mikilli ábyrgð. Það er ekki nóg að tala um opna umræðu. Það þarf líka að verja sjálfa umræðuna og tryggja að skoðanamyndun þjóðarinnar sé frjáls og óháð utanaðkomandi aðilum.

Margar þjóðir hafa fjárfest markvisst í getu til að greina skipulagðar áhrifaherferðir og ranga upplýsingamiðlun í aðdraganda kosninga. Ég tel afar mikilvægt að við gerum slíkt hið sama. Þetta mun ekki eingöngu gagnast í þjóðaratkvæðagreiðslunni núna í haust heldur í öllum kosningum sem munu koma þar á eftir. Þetta snýst ekki um það að stjórnvöld eigi að hafa áhrif á skoðanir fólks. Þvert á móti snýst þetta um að verja sjálfstæða skoðanamyndun þjóðarinnar og tryggja að ákvörðun Íslendinga verði tekin á grundvelli upplýstrar umræðu en ekki vegna skipulagðra áhrifa, jafnvel erlendra aðila eða fjársterkra hagsmunaaðila.

Virðulegi forseti. Við í Framsókn trúum á alþjóðlegt samstarf. Við styðjum EES-samninginn og náið samstarf Íslands við Evrópu en við trúum líka á fullveldi Íslands, á forræði þjóðarinnar yfir eigin auðlindum og á það að framtíð Íslands verði best byggð á okkar eigin forsendum. Þess vegna er það mitt mat og mín skoðun að Ísland eigi ekki að fara í þessa vegferð, ekki vegna þess að við ætlum eitthvað að loka okkur af heldur vegna þess að reynslan, staðreyndirnar og hagsmunir Íslands benda í aðra átt. Við erum eitt farsælasta samfélag heims. Við höfum náð þeim árangri með sjálfstæði, með forræði yfir eigin auðlindum og með ákvörðunarvaldinu hér heima. Sú leið hefur reynst okkur vel hingað til og mun eflaust reynast okkur vel inn í framtíðina. Það er að mínu mati afar mikilvægt að við byggjum á þeirri reynslu og þeirri hefð sem ríkt hefur hér um árabil og fært okkur farsæla niðurstöðu.