157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:12]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir prýðiserindi. Þingmaðurinn gerði að umtalsefni í sinni ræðu það sem hefur nokkuð verið rætt um, sem er óttinn, og hugsanlega bara með réttu, við erlend áhrif á umræðuna. Ég deili þeim áhyggjum með æðimörgum, að ég held, að erlend öfl geti hugsanlega haft hér slík áhrif, ekki síst á sumarleyfistímanum þegar geta okkar til að bregðast við slíkri umræðu er kannski í lágmarki. Einkum og sér í lagi veldur þetta mér áhyggjum vegna þess að það er þó aðeins eitt ríki, eða öllu heldur ríkjasamband, sem hefur gefið það út að það muni beita sér fyrir réttum upplýsingum, eins og það er kallað, og það er Evrópusambandið sjálft. Það hefur legið fyrir alveg síðan 2009 að Evrópusambandið myndi beita sér í þessari umræðu til að tryggja „meintar“, ég ætla að leyfa mér að nota það orð, réttar upplýsingar. Mig langar því að spyrja hv. þm. Ingibjörgu Isaksen hvort hún deili með mér þessum áhyggjum af því að upplýsingar, ekki síst á sumarleyfistíma, einhliða upplýsingaáróður af hendi Evrópusambandsins, geti haft verulega mótandi áhrif á afstöðu landsmanna og umræðuna og hvernig hún mun þróast í sumar.