þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég heyri að hv. þingmaður deilir með mér þessum áhyggjum. Við höfum meira að segja bara nú nýlega séð hvernig svokölluðum bottum er beitt í umræðunni. Það kom m.a. fram í máli er varðar Vélfag á Akureyri þar sem það virtist algerlega grímulaust hvernig þessu var beitt. Sem betur fer var þetta svo illa unnið í því tilfelli að það var auðséð að þar voru gervimenni á bak við. En með vandaðri framsetningu er hæglega hægt að láta svona hljóma mjög trúverðugt.
Mig langar í seinni spurningu minni annars vegar að spyrja hv. þingmann um afstöðu hennar gagnvart því að ætla þjóðinni að ganga til atkvæðagreiðslu í lok sumars án þess að fá trúnaði aflétt af fjölda fundargerða. Það er nógu erfitt fyrir okkur sem störfum hér inni að taka upplýsta umræðu um hvað mögulega er búið að gera og fjalla um og ræða af hálfu hæstv. ráðherra erlendis, en það er ekki síður og jafnvel miklu flóknara fyrir þjóðina. Ég spyr hvort það sé ekki eðlileg krafa, þó að eitthvað yrði að yfirstrika vegna einhverra upplýsinga sem hugsanlega ættu ekki erindi til fólks, að þjóðin fái aðgang að þessum gögnum. Síðari spurningin er bara svona já eða nei-spurning: Telur hv. þingmaður einhverjar líkur á því að við fáum varanlegar undanþágur frá stofnsáttmála Evrópusambandsins? Ekki sérlausnir, frú forseti, ekki tímabundna aðlögun, heldur varanlega undanþágu frá stofnsáttmála Evrópusambandsins.