157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:19]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Hann náði nú að fara yfir ansi mikið efni og ég ætla að gera mitt besta til að svara þessu. Varðandi síðustu spurninguna, varðandi varanlegar undanþágur, þá held ég að svarið sé einfaldlega nei. Miðað við þær upplýsingar sem ég hef fengið á mitt borð, sem ég hef aflað mér í kringum þetta mál, þá er það mitt mat að svo sé ekki. En varðandi spurninguna sem laut að gögnum og upplýsingum sem liggja fyrir, gögnum sem nefndarmönnum utanríkismálanefndar einum er heimilt að skoða, þá tel ég að það sé mjög mikilvægt, a.m.k. fyrir okkur þingmenn, að fá að sjá þau. Það er erfitt fyrir okkur að hafa upplýsingar og skoða þær en mega ekki tjá okkur um þær, mega ekki vitna í þær, mega ekki segja frá þeim eða sýna þær almenningi. Við 63 sem erum hér inni höfum öll eitt atkvæði en þjóðin þarf líka að taka ákvörðun. Við eigum ekki að hafa einhverjar meiri eða frekari upplýsingar varðandi málið en almenningur þarna úti. Við erum að vinna fyrir almenning og það er okkar verkefni að upplýsa almenning um hvað felst í málinu. Að mínu mati er því afar mikilvægt að þessar upplýsingar liggi á borðinu ef hægt er að létta trúnaði af þeim. En ég skil fullvel þá þingmenn sem vilja ekki kynna sér þessar upplýsingar einmitt vegna þess að þeir geta ekki tjáð sig um þær.

Varðandi áhrifin af þessu máli þá er líka afar mikilvægt að hafa í huga — nú er ég nýkomin frá Liechtenstein þar sem sameiginleg þingmannanefnd EES var að funda. Þar funduðum við með Sviss, Liechtenstein og Noregi ásamt þingmönnum Evrópusambandsins sem eru í þessari nefnd og það er alveg augljóst að þetta er heita málið og er alls staðar til umræðu. Þetta var stóra spurningin: Hvernig fer þessi atkvæðagreiðsla í ágúst? Þetta mun hafa áhrif á aðrar þjóðir. Það eru aðrar þjóðir sem hafa áhyggjur af þessu. Einmitt þess vegna er mikilvægt að svona mál, svona umfangsmikið og stórt mál, sé vandlega unnið. Því miður, miðað við hvernig málið er reifað hér, þá er það mikill áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina.