þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Já, ég fór yfir það í ræðu minni hvernig ég teldi að það hvernig við höfum haldið á okkar málum sjálf hefði skilað okkur þessum undraverða árangri sem við höfum náð á Íslandi og að ég telji að leiðin til áframhaldandi velsældar, m.a. til að ná hér meiri stöðugleika og betri stöðu í efnahagslífinu, sé að halda áfram sjálf á okkar málum, ekki leita á náðir Evrópusambandsins sem, eins og hv. þingmaður fór yfir, hefur lítið að bjóða. En af hverju er þá þessi ríkisstjórn að fara í þessa vegferð? Það er auðvitað augljóst að þetta var á lista ríkisstjórnarinnar í stjórnarsáttmála alveg frá byrjun þannig að nr. 1 langar mig að segja að þetta er auðvitað bara forsenda fyrir tilvist eins af stjórnarflokkunum. Viðreisn var stofnuð utan um það að koma Íslandi í Evrópusambandið þannig að ég skil þann anga málsins þannig að Viðreisn er auðvitað í sífelldri leit að eigin sjálfsmynd og fær hana ekki öðruvísi en með staðfestingu hjá Evrópusambandinu. Síðan er hitt sem hv. þingmaður nefnir, að svo er liðinn þessi tími, það eru liðnir 18 mánuðir, þar af heilt ár í baráttunni við verðbólgu á Íslandi þar sem enginn árangur hefur náðst. Þessi ríkisstjórn er augljóslega orðin ráðþrota. Hún hefur gefist upp á verkefninu og þess vegna er auðvitað verið að flýta þessari þjóðaratkvæðagreiðslu sem stóð til að yrði á næsta ári fremur en þessu. Þetta er alger uppgjöf fyrir verkefninu. Ríkisstjórnin hreinlega ræður ekki við efnahagsástandið á Íslandi.