þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hennar svör. Í seinna andsvari vil ég koma að þessu sem hv. þingmaður nefndi með Viðreisn, flokkinn sem er hér raunverulega í þeirri vegferð einni að ganga í Evrópusambandið. Það er þeirra erindi í stjórnmálum. Ef þeir tapa svo þessari atkvæðagreiðslu í haust, 29. ágúst, er þá þeirra erindi í stjórnmálum lokið? Hvað taka þau þá til bragðs að mati hv. þingmanns? Hvað munu þau þá taka upp hérna þegar þetta eina, helsta og þeirra aðalmál alveg frá stofnun flokksins, að ganga í Evrópusambandið, ef þjóðin hafnar því, hvert verður þeirra erindi að mati hv. þingmanns?