þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það er rétt sem hv. þingmaður fer yfir, að þetta er orðið þeirra eina erindi eftir að við gerðum út um hitt erindið þeirra sem var auðvitað jafnlaunavottunarkerfið sem við erum svona hálfpartinn búin að jarða hér á Alþingi fyrir tilstuðlan hæstv. dómsmálaráðherra sem sá að sér í þeim efnum. Við getum auðvitað hlegið að því hér en það er ótrúlegt að við séum, öll þjóðin, dregin með í þessa vegferð og sjálfsmyndarleit Viðreisnar. Hvað verður um Viðreisn að þessu ævintýri loknu? Ja, það liggur auðvitað næst við að bjóða Viðreisn aftur velkomin heim, því að Viðreisn er auðvitað klofningsflokkur út úr Sjálfstæðisflokknum þannig að ég vonast auðvitað til þess að þeir komi aftur heim þegar þeir „settla“ loksins þetta mál sitt á kostnað þjóðarinnar.