þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir mjög kröftuga og öfluga ræðu. Það fór svo sem ekkert á milli mála að hv. þingmaður veit hvað hún syngur með sínu nefi þegar kemur að þessum málum. Nú hefur hv. þingmaður töluverða reynslu af utanríkisþjónustu; hún var starfandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra á þarsíðasta kjörtímabili, ef ég man rétt, og sömuleiðis hefur hv. þingmaður tekið saman gögn um það hversu mikinn hluta af regluverki Evrópusambandsins við höfum innleitt, þ.e. í gegnum EES-samninginn, og hvað við höfum tekið mikið upp af því regluverki sem Evrópusambandið leggur til. Það væri fróðlegt að fá það fram hér, frú forseti, því að það hefur verið mjög á reiki í umræðunni, hversu langt Íslendingar hafa gengið í því að innleiða það regluverk Evrópusambandsins sem nú er við lýði.
Sömuleiðis langar mig að beina spurningu til hv. þingmanns: Hv. þingmaður kom inn á það í sinni ræðu að þegar þú sækir um aðild og þú ert að taka skrefið, til að segja að eitthvert þjóðríki sé orðið aðili að Evrópusambandinu, hver er svona þumalputtaregla um það hvað hvert ríki þarf að vera búið að innleiða samdægurs, eða því sem næst samdægurs, sem engin undanþága er gefin fyrir? Hver er prósentutalan af því, ef hægt væri að vitna til stækkunarstjóra nýverið frá Evrópusambandinu sem lét þau orð falla í umræddum fréttatíma fyrir ekkert svo margt löngu?