157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:46]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er rétt sem hv. þingmaður segir. Ég var aðstoðarmaður utanríkisráðherra á þarsíðasta kjörtímabili áður en ég settist hér á þing og hef verið í utanríkismálanefnd síðan og m.a. formaður nefndarinnar þannig að ég fylgist mjög vel með þessum málaflokki. Það er nú tekið saman á EFTA-skrifstofunni hversu hátt hlutfall við tökum upp af heildar ESB-regluverkinu. Þegar ég var aðstoðarmaður utanríkisráðherra var þetta hlutfall í kringum 13,4%. Þetta er bara útgefið af EFTA-skrifstofunni og birt í skýrslu utanríkisráðuneytisins sem er aðgengileg á netinu og allir geta flett þessum tölum upp. Mig minnir að í síðustu skýrslu sem kom út hafi hlutfallið verið um 17 eða 18%. Mér gafst ekki tími í ræðu minni til þess að fara yfir þennan gríðarlega mun sem er á ESB og EES því að það eru fjölmargir stjórnarliðar sem hafa reynt að afvegaleiða umræðuna með því að þetta sé eiginlega bara nánast það sama. Það er auðvitað gríðarlegur munur á EES og ESB, ekki bara í umfangi heldur alger eðlismunur. Löggjafarvaldið er auðvitað enn þá og áfram algerlega í höndum EES-ríkjanna eins og okkar, Alþingis, á meðan löggjafarvaldið er framselt til ESB í málefnum sem varða ESB. Þar eru sett lög og teknar ákvarðanir sem gilda samstundis í ESB-ríkjunum og án nokkurrar aðkomu þjóðþinganna. Dómsvaldið er sömuleiðis framselt, eftirlitið með löndunum með framselt, EES er auðvitað ekki tollabandalag og það er engin sameiginleg stefna eða yfirráð hjá EES þegar kemur að auðlindunum, svona til þess að nefna stærstu atriðin.

Annars spurði hv. þingmaður mig út í prósentuna. Auðvitað gengur aðlögunin að ESB í þessum viðræðum út á það, eins og margoft hefur verið skýrt út og kemur fram á heimasíðu Evrópusambandsins, að taka upp ESB-regluverkið. Þetta hefur reyndar sumpart komið hér fram í andsvörum stjórnarliða, þeirra sem þó segja satt. Ég er ekki með prósentuna á hreinu (Forseti hringir.) en það kom auðvitað fram í fréttatilkynningu í lok árs 2012, rétt áður en Samfylkingin gerði hlé eða sleit viðræðunum árið 2013, (Forseti hringir.) það var framvinduskýrsla um það hversu nálægt við værum að taka upp þetta regluverk Evrópusambandsins. Út á það ganga viðræðurnar en hv. þingmaður kemur vonandi betur inn á þetta í sínu síðara andsvari.