157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:49]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Ef ég man rétt, þar sem ég vitnaði nú til viðtals við núverandi stækkunarstjóra Evrópusambandsins, sem ég man ekki alveg hvað heitir, ég biðst velvirðingar á því, þá minnir mig að þar hafi komið fram að allar verði 95% af regluverkinu sem tekið væri upp samdægurs og síðan væri hægt að fá aðlögun að hinum 5% á einhverjum vissum tímaramma í framtíðinni. Það er mjög áhugavert í svari hv. þingmanns hvað það varðar sem snýr að þessum ruglingi, þ.e. þessari umræðu um það að við séum búin að innleiða svo mikið af þessu og þetta sé bara formsatriði o.s.frv. Það verður að vera skýrt í ljósi þess að það á að fara að greiða hér atkvæði í haust um það hvort menn vilji ganga til viðræðna við Evrópusambandið hvað við erum búin að innleiða. Ef þjóðinni er sagt að þetta sé bara formsatriði, (Forseti hringir.) það er búið að innleiða hér 80–90% af öllu regluverkinu þannig að þetta er ekkert mál. Það er vandamálið í svo mörgu sem við erum að eiga við hérna, þetta upplýsingaflökt á allri umræðu.