þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Það er rétt sem hv. þingmaður segir að það skiptir máli að við séum sirkabát með mynd af því sem mun fara af stað ef þjóðin segir já í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, m.a. um það sem sjálfir embættismenn og forsvarsmenn Evrópusambandsins hafa sagt, sérstaklega fyrir þá sem hafa minni trú á innlendum röddum og innlendum stjórnmálamönnum. Þeir hljóta þá a.m.k. að geta tekið orð forsvarsmanna Evrópusambandsins trúarlega. Auðvitað er langstærstur hluti af því sem varðar Evrópusambandið algerlega óumsemjanlegur. Þetta er regluverk og kerfið sem við munum þurfa að undirgangast. Við erum ekki að ímynda okkur að við værum 28. sambandsríki Evrópusambandsins til að gjörsamlega snúa sambandinu á hvolf og breyta því í eðli sínu. Það er einhver stórfelld blekking og ekkert annað en upplýsingaóreiða, eins og hv. þingmaður kemst að orði. Reyndar er það svo að Feneyjanefndin hefur auðvitað gert ríkar kröfur til okkar í þessum efnum og sérstaklega til stjórnvalda, að við séum að stuðla að upplýstri umræðu og gefa hér raunsannar og réttar upplýsingar. Það að koma hér í pontu og halda því fram að við séum að taka upp í 80–90% af regluverki Evrópusambandsins eru ósannindi og ég hvet fólk til að fletta þessu sjálft upp í skýrslum utanríkisráðuneytisins.