157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:52]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Frú forseti. Það er ástæða til að hrósa hv. þingmanni fyrir mjög góða og yfirgripsmikla ræðu um þetta stóra mál. Hv. þingmaður nefndi það að hann hefði ekki komist í að ræða eðli umsóknar eða aðildarferlisins í þessari ræðu og mun gera það síðar, hugsanlega seinna í kvöld eða á morgun. En mig langaði þó að taka ákveðið forskot á sæluna hvað það varðar og spyrja hv. þingmann út í það sem hefur mikið verið rætt í utanríkismálanefndinni, þar sem við eigum bæði sæti, og eins hér á þinginu í dag og varðar leynigögnin. Hvernig má það vera að ríkisstjórn skuli boða mál með mjög takmörkuðu tilliti til innihalds þess og staðreynda málsins, byggja málflutning sinn á frösum á borð við að það eigi að leyfa þjóðinni að velja og treysta þjóðinni og það verði að forðast upplýsingaóreiðu, en að sama fólk skuli neita að afhenda grundvallarupplýsingar í málinu. Það hefur komið á daginn jafnt og þétt í vinnu hv. utanríkismálanefndar, eftir því sem henni hefur tekist að kría út upplýsingar, að málið var kynnt á fölskum forsendum í upphafi. Upplýsingum var leynt, til að mynda, og alveg sérstaklega upplýsingum um mjög tíða fundi hæstv. utanríkisráðherra með fulltrúum Evrópusambandsins þar sem m.a. var rætt um aðild að Evrópusambandinu.

Ég spyr hv. þingmann: Eru einhverjar líkur á því að hæstv. utanríkisráðherra hafi í Brussel kynnt málið á sama hátt og hér og sagt: Sjáið þið til, við erum alls ekki að sækja um til að ganga inn. (Forseti hringir.) Við erum bara að sækja um aðild til að sjá hvað þið bjóðið okkur.