157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[17:54]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta utanrmn. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er rétt sem hv. þingmaður fer hér yfir. Málið er auðvitað lagt upp með þeim hætti að það er auðvitað illa undirbúið og það er lagt upp með að veita sem allra minnstar upplýsingar; að reyna að komast upp með það að veita sem allra minnstar upplýsingar af því að þeir sem fara fyrir þessu máli er fólk sem hefur stúderað þessa hluti og haft þá stefnu sína árum og áratugum saman að Ísland gangi í Evrópusambandið. Það eru stjórnmálamenn sem fara fyrir þessu máli sem hafa þessa æðstu ósk, þennan æðsta draum, að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þeir vita sem er, og þessu er flett upp, að því meiri sem umræðurnar eru, því meiri sem upplýsingarnar eru, því minni verður stuðningur við Evrópusambandið. Eftir því sem umræðan eykst og við förum dýpra undir yfirborðið á þessum frösum um að treysta þjóðinni og hvort við gætum haft það betra, um leið og umræðan er orðin aðeins dýpri þá fer stuðningurinn að dvína. Þess vegna hvet ég fólk sem er að fylgjast með til að fletta þessu sjálft upp, því að það geta allir verið sín eigin upplýsingaveita, það geta allir verið sinn eigin fjölmiðill og bara skoðað þessi mál sjálfir, fundið bara til þess áreiðanlegar upplýsingar, m.a. á heimasíðu Evrópusambandsins.

En það er annað rétt sem hv. þingmaður nefnir og það er að þær litlu upplýsingar sem við þó fengum sýndu það svo ekki verður um villst að hæstv. utanríkisráðherra hefur verið að leggja á ráðin um þetta mál með embættismönnum og forsvarsmönnum Evrópusambandsins alveg frá því að hún tók við embætti. Við fengum skrá yfir 50 fundi með Evrópusambandsríkjum og embættismönnum Evrópusambandsins, m.a. fundi sem höfðu sérstaklega verið undanskildir í fréttatilkynningu utanríkisráðuneytisins og fólk getur bara lesið í það sem það vill. En við fáum hins vegar ekki að vita um innihald fundanna. Við fáum ekki punkta eða fundargerðir af þessum fundum, ekki neinar upplýsingar og okkur í utanríkismálanefnd hefur verið meinað að leggja fram frekari upplýsingabeiðnir um efni þessara funda.