þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Þetta eru grundvallarspurningar, grundvallarupplýsingar til að geta svarað spurningunni: Hvað gerist ef almenningur segir já í þjóðaratkvæðagreiðslu sem áformuð er í lok ágúst? Fulltrúar Feneyjanefndarinnar bentu á mikilvægi þess að það sé alveg á hreinu hvað gerist ef menn segja já. En upplýsingum þar um hefur verið haldið frá okkur og að því marki að tillögu fulltrúa Feneyjanefndarinnar um að leita til Evrópusambandsin og spyrja það bara: Hvernig horfir málið við ykkur ef umsókn er send á þessum forsendum? var hafnað í nefndinni.
En í ljósi svars hv. þingmanns þá spyr ég í beinu framhaldi af því: Telur hv. þingmaður að það sé einhver möguleiki á því að hæstv. utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sem hefur helgað sitt pólitíska starf og stofnun þess flokks sem hún leiðir inngöngu í Evrópusambandið, muni ræða við fulltrúa Evrópusambandsins og segja svo bara: Nei takk, þetta hentar ekki?