þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Það er eitt sem við gleymdum í þessari upptalningu: Hér hefur verið staddur forsvarsmaður Evrópusambandsins á landinu og neitað að koma fyrir íslenska þingnefnd til að svara spurningunum. Einhverju er nú verið að leyna, eitthvað er það sem þolir ekki dagsins ljós. Um mat mitt á því hvort áætlan stjórnvalda, áætlan hæstv. utanríkisráðherra, sé að fara í bjölluat í Brussel í annað skiptið og þiggja til þess milljarða. Ég hef enga trú á því. Ég hef enga trú á því að hugur hæstv. utanríkisráðherra og þeirra ESB-sinna sem sitja í þessari ríkisstjórn standi ekki til þess að innlima Ísland að fullu inn í Evrópusambandið; þiggja til þess milljarða styrki og klára síðan verkið. Það er auðvitað til þess sem hugurinn stendur þannig að svarið er einfalt frá mér.