157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:15]
Horfa

Þórarinn Ingi Pétursson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna og hans yfirferð á áliti 2. minni hluta utanríkismálanefndar. Mig langar að fara aðeins út fyrir efnið hvað varðar álit 2. minni hluta og velta fyrir mér með hv. þingmanni og spyrja hann út í þá umræðu sem hefur verið frekar háfleyg og snýr að þeim auðlindum sem talað er um að eigi að verja með kjafti og klóm og að Evrópusambandið sé bara tiltölulega tilkippilegt að fara í viðræður við okkur um ákveðnar undanþágur og til þess sé leikurinn gerður, það eigi að fara í viðræður til þess að fá ákveðinn samning sem geri það að verkum að við getum verið með full yfirráð yfir sjávarútvegsauðlindinni, orkuauðlindinni og fleiru. En síðan þegar maður fer nú að lesa á milli línanna — frú forseti, ég held að ég eigi ekki að vera með 18 eða 20 mínútur í andsvar, en takk fyrir það samt. En ég get ekki betur skilið en að það séu í sjálfu sér ekki í boði neinar varanlegar undanþágur hjá Evrópusambandinu. Alla vega hafa þær ekki verið veittar, ef ég hef skilið þetta rétt, frá árinu 2004 þegar stækkunarferlið fór af stað á sínum tíma af fullum krafti. Mig langar að spyrja, frú forseti, hv. þingmann að því hvort hans rannsóknir sýni, af því ég veit að hv. þingmaður hefur nú kafað djúpt í þessi mál, og hvort hann sé því sammála að þarna séu engar undanþágur í boði heldur þurfum við að undirgangast allar þær stefnur sem Evrópusambandið er með á sínu borði í dag. Við verðum að aðlaga okkar regluverk, hvort sem það snýr að sjávarútvegi, orkuauðlindinni, landbúnaði og fleiru sem okkur er mjög tamt að hugsa vel um (Forseti hringir.) og verja með kjafti og klóm.

(Forseti (HildS): Forseti biðst afsökunar, hún hefur enga stjórn á þessari klukku sem var í miklum vandræðum með sjálfa sig, en þingmaðurinn fékk þann tíma sem honum bar.)