157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:18]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er náttúrlega eitt stærsta umræðuefnið í tengslum við áformaða þjóðaratkvæðagreiðslu og ég kem inn á það síðar í nefndarálitinu. Það er alveg hárrétt sem hv. þingmaður bendir á að Evrópusambandið er mjög tregt til að veita varanlegar undanþágur og því tímabili er í rauninni lokið, því lauk með stóru stækkuninni með innkomu Austur-Evrópuríkjanna 2004 þegar stefnan var mörkuð upp á nýtt. Evrópusambandinu hafði alltaf verið í nöp við þetta tal um undanþágur en þar var áréttað að þær ættu að heyra sögunni til. Raunar voru fyrri undanþágur mjög léttvægar. Það er enn vitnað í dönsku sumarbústaðalóðirnar, undanþágu sem var veitt 1972, löngu áður en Evrópusambandið varð til, þegar Danmörk var hluti af Efnahagsbandalagi Evrópu. En nú vill Evrópusambandið ekki sjá frekari undanþágur og hefur m.a. bent Bretlandi á það að ef þeir vilja ganga aftur í sambandið þá geti þeir gleymt öllu tali um undanþágur, þar með talið þeirri stöðu sem þeir höfðu áður. Nú skuli þeir ganga í sambandið á sömu forsendum og allir hinir. En hæstv. ráðherrar í ríkisstjórn Íslands reyna að telja okkur trú um að Ísland hins vegar hljóti að fá undanþágur engu að síður. Það sem ég hef mestar áhyggjur af hvað þetta varðar er, af því að við höfum séð til þessara hæstv. ráðherra, ég hef mestar áhyggjur af því að einhverju sem er ekki raunveruleg undanþága verði stillt upp sem undanþágu. Við sjáum t.d. umfjöllun um ETS-gjöldin svokölluðu. Þar var fullyrt að Ísland hefði fengið undanþágur frá því regluverki. Maður reyndi að benda á að þetta væri bara ekki rétt. Lesið bara textann. Þetta er bara frestur. Það var samt fullyrt að þetta væru undanþágur. Svo kom á daginn að auðvitað var þetta bara frestur og raunveruleikinn blasir við okkur núna. Ég óttast að það verði reynt að leika sama leik, (Forseti hringir.) t.d. með sjávarútveginn eða landbúnaðinn, og sagt verði: Við fengum hérna sérlausnir, undanþágur. Svo líða tvö, þrjú ár og allt er farið.