þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir svarið. Mig langar að halda áfram í seinna andsvari við hv. þingmann um það sem snýr að orkuauðlindinni. Nú er það okkur flestum í fersku minni þegar umræðan fór fram um orkupakka þrjú og þar varaði hv. þingmaður og hans flokkur mjög grimmt við innleiðingu á orkupakka þrjú og væntanlega á nú margt eftir að koma á daginn, sérstaklega hvað varðar þau varúðarsjónarmið sem hv. þingmaður og hans flokkur höfðu frammi þá. Stóra atriðið, það var samið um það og umræðunni lauk með því, var að Alþingi yrði að veita heimild til þess að það yrði lagður sæstrengur frá Íslandi til Evrópu. Mig langar að velta því upp við hv. þingmann: Segjum sem svo að við færum þá ógæfuleið að verða aðilar að Evrópusambandinu. Hvað kemur hugsanlega til með að gerast á raforkumarkaði á Íslandi ef við yrðum aðilar að Evrópusambandinu? Myndi það breyta einhverju fyrir okkur eða ekki? Það væri mjög áhugavert, því að ég veit að hv. þingmaður er mjög fróður þegar kemur að umræðu um orkupakkana og innri markað Evrópusambandsins sem snýr að raforku, ef hann færi aðeins yfir í seinna andsvari yfir hans áhyggjur. Hvað gæti gerst fyrir almenning á Íslandi ef Ísland yrði aðili að Evrópusambandinu?