157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:22]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta utanrmn. (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (M) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er prýðisgóð upprifjun hjá hv. þingmanni. Það muna ekki allir þingmenn hvað gerðist fyrir fáeinum árum, jafnvel ekki hvað gerðist í gær í umræðum hér, en þetta er mjög þarft innlegg í þessa umræðu. Það var reynt að ljúka þessu máli með því að árétta að það yrði alltaf í höndum Alþingis að taka lokaákvörðun um sæstreng og hvert íslenska orkan færi. En ef við verðum aðilar að Evrópusambandinu þá trompa evrópsk lög íslensk. Það er óumdeilt í þessu. Þá er Alþingi búið að missa síðasta orðið varðandi löggjöf. Þá er Evrópusambandið í stöðu til þess að leggja línurnar hér og það ætti að vera tilefni til að valda okkur áhyggjum að Evrópusambandið er auðvitað í mikilli orkukrísu, stórkostlegri orkukrísu. Um leið er það með sínar sérstæðu hugmyndir varðandi gróðurhúsalofttegundir og leiðir til að takast á við það. Það er bara alls ekkert ólíklegt, ég myndi segja mjög líklegt, að Evrópusambandið mæti það sem svo að Ísland þyrfti að leggja sitt af mörkum og skaffa orku fyrir Evrópu sem getur ekki séð sjálfri sér fyrir orku, mörg lönd þar geta það ekki vegna þess hversu illa þau hafa haldið á sínum málum, og að nú þurfi Ísland sem þátttakandi í þessu öllu að gera sitt og framleiða meiri orku, t.d. með vindmyllum úti um allar trissur á Íslandi þannig að Ísland geti orðið svona eins og rafall fyrir Evrópu og stungið í samband og hlaðið einhverjar verksmiðjur í Evrópu — kannski ekki verksmiðjur, frú forseti, eru ekki allar verksmiðjur að flytja frá Evrópusambandinu? — en haldið ljósunum kveiktum a.m.k. í Evrópusambandslöndunum.