157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:25]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Við upphaf þingfundar í dag var nokkur umræða hér undir fundarstjórn forseta um hvernig myndi miða áfram hjá okkur og væntingar virðulegs forseta lágu til þess að hér gætu átt sér stað málefnalegar umræður sem myndi ljúka fyrr en síðar og málið yrði afgreitt hér í þinglegri meðferð frá Alþingi. Undir lok þeirrar umræðu kom fram hvatning og í senn ásökun gagnvart hæstv. utanríkisráðherra um það að hún hafi ekkert verið viðstödd þessa umræðu. Það er í raun alveg fáránlegt að við skulum búa við það að hér er eitt stærsta utanríkismál sem hefur borið á góma hjá íslenska þinginu í áratugi og hún skuli ekki sýna þinginu þann sóma að vera viðstödd þessa umræðu. Virðulegur forseti fullyrti það í dag að hún hefði verið upptekin á fundi upp úr hádegi en hún myndi koma hingað til að vera við umræðuna síðar í dag.

Ég vil hreinlega óska eftir því að við frestum þessari umræðu þar til utanríkisráðherra sér sér fært að sýna þinginu og þjóðinni þá virðingu að vera hér viðstödd, taka þátt í þessari umræðu, svara áleitnum spurningum þingmanna um þetta stóra grundvallarmál. Þetta eru óboðleg vinnubrögð af hálfu hæstv. utanríkisráðherra.