157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:27]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Ég get tekið undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni. En ég kem hingað upp til að minna hæstv. forseta á þá beiðni sem var lögð fram hér, reyndar fyrir allmörgum dögum síðan en hefur verið ítrekuð aftur og aftur í dag, þá beiðni til hæstv. forseta að gögnin verði frelsuð, að hv. þingmenn fái að sjá þau grundvallargögn sem hvíla hér í læstu leyniherbergi í húsakynnum Alþingis og varða samskipti íslenskra hæstv. ráðherra við Evrópusambandið svo við hv. þingmenn vitum um hvað verða greidd atkvæði í þessu máli og ég tala nú ekki um svo almenningur fái að vita hvað já þýðir í áformaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Hvaða afleiðingar mun það hafa ef menn segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni?