157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:30]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Forseti. Það er ekki annað hægt en að taka undir þau orð sem hér hafa komið fram er varða sérstaklega þetta leyniherbergi og gögnin sem þar eru læst inni. Það er einhver grundvallarmisskilningur í gangi hjá a.m.k. sumum stjórnarliðum. Það hefur komið fram í umræðunni að fulltrúar í utanríkismálanefnd ættu bara að fara í þetta herbergi og taka með sér gögnin einhvern veginn í hausnum og upplýsa þingflokka sína. Þetta virkar ekki svona. Við, óbreyttir þingmenn, eða sem sagt við þingmenn sem erum ekki í utanríkismálanefnd, og á það nú við um flesta sem eru hér í þessum sal núna, eigum enga möguleika á að skoða eða glöggva okkur á þessum gögnum sem um ræðir. Þannig að mig langar til að óska eftir því að hæstv. forseti upplýsi um það hvort einhver samtöl hafi átt sér stað sem gætu losað um þessi gögn þannig að þau yrðu aðgengileg. Eru samtöl í gangi milli þingflokksformanna og forseta eða samtöl forseta við einhvern annan til þess bæran? (Forseti hringir.) Hvernig stendur málið sem var svo rækilega óskað eftir að yrði skoðað hér við upphaf þingfundar í dag?