157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:31]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Hér er til umræðu stærsta mál sem ratað hefur í sali þingsins frá stofnun lýðveldisins, byggt á málinu frá 2009. Hæstv. ráðherrar, forsætisráðherra þjóðarinnar og utanríkisráðherra þjóðarinnar, láta ekki svo lítið að koma hér og taka þátt í umræðunni í þessu langstærsta máli sem við höfum fengist við í þessum þingsal. Svo er hitt sem var ítrekað í fundarstjórn hér fyrr í dag, frú forseti. Ég segi ítrekað vegna þess að sú beiðni hefur margsinnis komið fram að bæði þingmenn og þjóðin öll þurfa að fá aðgang að öllum upplýsingum um samskipti ráðamanna við erindreka frá Brussel. Ef okkur er ætlað að taka við lok sumars upplýsta ákvörðun og greiða atkvæði með upplýstum hætti þá gefur augaleið, frú forseti, (Forseti hringir.) að það mega ekki vera nein leynigögn. Það má ekki vera eitthvað sem bara ákveðnir aðilar vita en aðrir ekki og það gildir um þjóðina alla, ekki bara okkur hér í þessum þingsal.