þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Það er eiginlega með ólíkindum að stjórnarandstaðan þurfi að koma hér upp aftur og aftur í fundarstjórn til að kalla eftir einföldum svörum, kalla eftir því að gögn séu opinberuð, gögn sem hljóta að innihalda m.a. upplýsingar um þau samskipti sem hafa átt sér stað milli hæstv. utanríkisráðherra og Evrópusambandsins. Það liggur alveg ljóst fyrir að hæstv. utanríkisráðherra er með meiri upplýsingar en m.a. hv. formaður utanríkismálanefndar því hv. formaður heldur að ferlið muni taka þrjú, fjögur ár á meðan hæstv. utanríkisráðherra segir að þetta geti jafnvel klárast á 12 mánuðum. Það yrði alveg nýtt drengjamet í sögu Evrópusambandsins. Svo kemur líka að því: Erum við að fara að afgreiða þingsályktunartillögu þar sem vafi leikur á um hvort það verði undir hæstv. forsætisráðherra (Forseti hringir.) komið hvort þau verði lögð fyrir þjóðina eða ekki? Þessum spurningum er algjörlega ósvarað, virðulegur forseti, og í rauninni fyrir neðan allar hellur að hér sé ekki hægt að koma upp og tala skýrt í þessu máli.