157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:34]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Þetta mál var rifið út úr utanríkismálanefnd út af tímapressu var okkur sagt. Núna í byrjun dags bentum við á að það vantaði gögn eða það þyrfti að upplýsa um þau gögn sem eru í þessu leyniherbergi. Nú er vel liðið á daginn. Ég er að koma í ræðu á eftir og sjálf myndi ég mjög gjarnan vilja geta rætt það sem er í þessum gögnum eða alla vega ekki að umræðan verði búin þegar við loksins sjáum gögnin. Mig langar því að beina því til forseta að hjálpa okkur þingmönnum að finna út úr því hver staðan sé og hvort ekki sé alla vega hægt að létta af þessum trúnaði fyrir þingheim allan þannig að þingflokkarnir geti rætt sín á milli mikilvægi þess að þjóðin fái að sjá þetta eða hvað sé þarna sem hæstv. ríkisstjórn vill fela fyrir þjóðinni.