157. löggjafarþing — 110. fundur,  26. maí 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[18:35]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Það er kannski tvennt sem ég vil minnast á í þessari fundarstjórn. Í fyrsta lagi hvar allir hæstv. ráðherrar séu staddir. Ég tók eftir því í dag þegar við vorum að greiða atkvæði um afbrigði fyrir fjórum klukkutímum eða svo að það var ekki einn einasti ráðherra hér á bekknum, ekki einn. Við erum að ræða hér við síðari umræðu um eitt mikilvægasta og afdrifaríkasta mál í sögu lýðveldisins, þ.e. að ganga til liðs við Evrópusambandið, gefa eftir löggjafarvaldið sem við höfum hér á þingi, gefa eftir dómsvaldið sem dómstólar landsins hafa haft og gefa eftir framkvæmdarvaldið sem ráðherrarnir, sem mæta nú reyndar ekki hér, hafa haft. Hæstv. utanríkisráðherra er ekki staddur við þessa umræðu. Í fjölmiðlum var talað um að umræðunni ætti að ljúka í dag, hvaðan sem menn hafa þá frétt. Utanríkisráðherra er ekki mættur. Við erum búin að tala hérna í líklega sex klukkutíma, hann hefur ekkert sést. Ætlar hann að koma hingað undir miðnætti eða hvenær?