þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Mig langar að taka undir með hv. þm. Jóni Gunnarssyni og hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, ekki síst varðandi ekki-viðveru utanríkisráðherra hér í salnum. Það var kallað eftir því fyrr í dag að hún yrði viðstödd. Því var svarað til, forseti, að hún væri upptekin fram yfir hádegi en hún myndi líta við síðar í dag. Nú er komið kvöld og hún hefur ekkert sést, þannig að hvar er utanríkisráðherra? Af hverju mætir hún ekki hér í salinn og tekur þátt í þessari umræðu?
Síðan varðandi leyniskjölin þá er ég þeirrar skoðunar að það sé ekki hægt að ljúka þessari umræðu án þess að við fáum að sjá þessi skjöl, ekki bara þeir aðilar sem eiga sæti í utanríkismálanefnd. Það er verið að halda þessum skjölum frá öðrum þingmönnum og þjóðinni. Ég tel að við getum ekki lokið þessari umræðu án þess að við fáum að sjá þetta og getum rætt þetta í þessari pontu.
Síðan vil ég taka undir með hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um að óska liðsinnis forseta við að fá að sjá þessi skjöl. Það væri kannski bara við hæfi að fundi yrði frestað og tekin umræða um hvernig hægt er að birta þessi skjöl þannig að við getum rætt þau í þessari pontu.